háhraðanettengingar í dreifbýli.
Herra forseti. Það hefur verið talað um marga kosti þess að hafa háhraðanettengingu um allt land. Mig langar að taka sérstaklega fyrir efnahagsvinkilinn og þann efnahagsbata og tækifæri sem hún skapar fyrir vöxt, fyrir fleiri störf og fyrir útflutningstekjur.
Skýrsla McKinsey & Company, Netið skiptir máli. Alhliða áhrif og mikil áhrif á vöxt, störf og velmegun, kom út árið 2011. Ég ætla að þýða hana jafnóðum þannig að ég hiksta kannski aðeins. Í skýrslunni kemur fram, þegar er verið að tala um mikil verðmæti sem verða til með internetinu, að internetið sé grunnþáttur vaxtar. Bæði þjóðhagsleg nálgun og tölfræðileg sýnir að í þeim þróuðu ríkjum sem voru stúderuð — sem þeir taka fram annars staðar að endurspegli 70% af hagkerfi heimsins — er internetið 10% af vergri landsframleiðslu á síðustu 15 árum. Þeir segja einnig að áhrif internetsins á landsframleiðslu séu að aukast.
Þeir segja að á síðustu fimm árum hafi hlutur internetsins í vergri landsframleiðslu, vexti hennar, hagvexti, tvöfaldast og er hann í dag 21%. Annars staðar í skýrslunni kemur fram að 21% af hagvextinum sem hefur orðið á síðustu fimm árum, þegar skýrslan er skrifuð, —75% af honum verða í hefðbundnum iðnaði, ekki bara internetfyrirtækjum eða slíku heldur hefðbundnum iðnaði.
Í skýrslunni er minnst á að internetið komi sér sérstaklega vel fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og hversu mikið það eykur vöxt þeirra. McKinsey gerði rannsókn á 4.800 litlum og meðalstórum fyrirtækjum og þar kemur fram að þau vaxa tvöfalt hraðar ef þau nýta sér internetið mikið, þau ráða til sín tvöfalt fleira starfsfólk og útflutningstekjurnar tvöfaldast. Það er akkúrat það sem við þurfum. Það mætti eiginlega segja að þetta væri í fyrsta, öðru og þriðja sæti á Íslandi í dag, við þurfum að auka útflutning. Ef við horfum á lítil og meðalstór fyrirtæki sem fá þetta mikla „boost“, þá ráða þau 66% starfsmanna á Íslandi og standa líka undir 66% af verðmætasköpun á Íslandi. Það er ekkert smávegis.
Hvað er lagt til núna? McKinsey bendir á að aðeins sterkt vistkerfi fyrir internetið, sem þeir útskýra síðan hvað þýðir, geti hámarkað verðmætasköpun og arðinn sem menn hljóta af því, sem ríkið hlýtur af því, sem fyrirtæki hljóta af því. Rannsóknir þeirra hafa leitt í ljós að þegar kemur að uppbyggingu sterks vistkerfis eru ákveðnir þætti sem þau fyrirtæki sem standa sig best hafa staðið sig vel í, svokallað „best practices“.
Það er talað um fjögur grundvallaratriði, grundvallarsvæði sem þarf að einblína á. Eitt af því er náttúrlega mannauðurinn, hann tengist þessu að hluta í því ljósi að háhraðanettenging tryggir betri menntun. Fólk getur alls staðar nálgast menntun í gegnum internetið og er útbreiðsla þess að aukast gríðarlega. Fólk getur menntað sig ókeypis í virtustu háskólum heimsins yfir internetið. Það er eitt atriðanna.
Það þarf að skapa kringumstæður fyrir fjármál eða fjármögnun, þótt það tengist þessu kannski ekki beint.
Síðan er það þróun innviða. Í skýrslunni kemur fram að ekki sé hægt að líta fram hjá innviðunum, þeir séu grundvallaratriði. Það er náttúrlega hið fýsíska við internetið, innviðirnir og tenginetin á milli. Það er það sem við erum að tala um hér í dag, að tenginetið sé á háhraða alls staðar á landinu. Þeir segja innviðina vera eitt af grundvallaratriðum fyrir vistkerfi internetsins, sem er nauðsynlegt til að hámarka verðmætasköpunina.
International Chamber of Commerce gaf út skýrslu um infrastrúktúr og internetið og áhrif þess á störf og hagvöxt. Þar kemur fram hvað það er sem svokallaðir „policy makers“ eða löggjafinn og aðrir þeir sem ákveða stefnu hins opinbera ættu að setja í forgang. Talað er um að auka breiðbandsinfrastrúktúrinn. Annað sem talað er um er að auka þurfi aðgengi að interneti á landsbyggðinni eða á afskekktari svæðum sem og aðgengi þeirra sem eru „underserved“ eða ekki þjónustaðir að fullu. Talað er um að nota markaðskraftana og að gera þetta á hagkvæman og árangursríkan hátt.
Við erum að ræða þingsályktunartillögu um að farið verði í að móta stefnu um að háhraðanettenging sé alls staðar á landinu, að farið verði í að móta þá stefnu alveg sama með hvaða móti það verður gert. Þetta er það sem þeir leggja til hjá International Chamber of Commerce.
Boston Consulting Group hefur gefið út margar skýrslur um internetið undir formerkjunum „The Connected World“, með leyfi forseta, eða Hinn tengdi heimur. Hér er skýrsla sem heitir Að þróa og aðlaga. Staður eða hlutverk hins opinbera þegar kemur að stefnumótun um internetið. Eitt af því sem þeir nefna, rétt eins og Boston Consulting Group, er að skoða það sem hefur verið best gert í heiminum, skoða það sem hefur virkað. Þeir segja að opinberir stefnumótendur ættu skoða það sem virkar, skoða það sem þeir kalla „safe bet-policies“, eða það sem hefur reynst best og er öruggt að skili sér líka annars staðar, að sjálfsögðu með það í huga að þetta þurfi að aðlaga og þróa og svo auka áhrif þess. Þar tala þeir fyrst um infrastrúktúr og nefna meðal annars að ríkisstjórnir í heiminum hafa lagt fram opinbert fé og „sponsered partnership“ eða komið á sambandi, samningum milli hins opinbera og aðila á markaði og aukið hraða á internetinu á dreifbýlli svæðum og tryggt aðgengi að internetinu á afskekktum svæðum. Þetta er það sem hefur verið gert. Nýja-Sjáland er tekið sem dæmi en 1,5 milljörðum nýsjálenskra dollara hefur verið varið til þess að koma ljósleiðara til 75% landsmanna og breiðbandi til 84% þeirra í dreifðari byggðum.
Þetta er viðskiptaanginn af þessu. Það er lagt til í þingsályktunartillögunni að fella niður vörugjöld til þess að tryggja og hraða þróun háhraðainternets alls staðar á landinu. Það rímar algjörlega við hugmyndafræði og stefnu þeirra flokka sem eru við völd. Mögulegt væri að sleppa því að fella þau niður og láta þau renna inn í fjarskiptasjóð sem ynni þá í því að framfylgja stefnu stjórnvalda, sama hver hún væri, eða í því að koma háhraðainterneti til allra landsmanna.
Það er alveg ljóst að internethagkerfið mun nærri tvöfaldast á þessu kjörtímabili. Helmingur heimsbúa verður nettengdur. Internethagkerfið verður fimmta stærsta hagkerfi heimsins. Tækifærin eru til staðar og (Forseti hringir.) „best practices“ í heiminum og helstu aðilar, alþjóðlegir ráðgjafar benda á að fara eigi í að styrkja innviðina og koma háhraðainterneti til landsmanna.