143. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2013.

þingstörfin fram undan.

[15:37]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Varðandi þessa spurningu vill forseti einfaldlega segja að það liggur fyrir að starfsáætlun hefur raskast að því leytinu að ætlunin var að 2. umr. fjárlaga færi hér fram 3. desember. Það er augljóst að það mun ekki takast. Hins vegar er að því stefnt að 2. umr. fjárlaga geti farið fram í næstu viku og það er ásetningur forseta eins og fram hefur komið. Að öðru leyti mun starfsáætlunin þá standa.