143. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2013.

sjúkraskrár.

24. mál
[15:51]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. velferðarnefnd fyrir að taka tillit til breytingartillögu sem ég stakk upp á hér í 1. umr. Hún var sú að þegar tæknimenn uppfæra tölvukerfi og slíkt, sem þeim er gefin heimild til í 5. gr. frumvarpsins, skuli notast við prufugögn eftir því sem unnt er. Mér þykja vinnubrögð velferðarnefndar alveg til fyrirmyndar í þessu máli og þakka bara kærlega fyrir mig.