143. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2013.

Orkuveita Reykjavíkur.

178. mál
[16:54]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta varð ekki að lögum, segir hv. þm. Ögmundur Jónasson. Það er alveg rétt, en í tvígang kom frumvarp frá hæstv. ríkisstjórn þess tíma sem hv. þm. Ögmundur Jónasson sat í. Við vitum öll hvaða málsmeðferð mál fá sem koma frá ráðuneytum til þingsins, þau fara fyrst í gegnum ríkisstjórnarborðið, þar sem hv. þingmaður hefur væntanlega lagt blessun sína yfir sambærilegt frumvarp. Af hverju varð það ekki að lögum? Af því að nefndin á þeim tíma tók (Gripið fram í.) — ha? Það kemur frá ráðuneytinu til ríkisstjórnar. (Gripið fram í.) Þetta kom alla vega til þingsins sem ríkisstjórnarfrumvarp á þeim tíma og þar sátu væntanlega hæstv. ráðherrar frá Vinstri grænum á þeim tíma. Í tvígang — það var held ég árin 2010 og 2011, árið 2010 var það í meðförum þingnefndarinnar þar sem tekið var tillit til sjónarmiða fyrirtækisins, fulltrúa þess, og málinu var frestað vegna þeirra aðstæðna sem voru hér á markaði.

Árið 2011 kom beiðni fram aftur frá fyrirtækinu um að fresta þessu og þá var ákveðið að gefa þeim tveggja ára frest, og það var tekið alveg sérstaklega fram, ef ég man rétt, í nefndaráliti þess tíma. Ég minnist þess ekki að sá þingmaður sem þá sat í atvinnuveganefnd fyrir Vinstri græna, eða þeir þingmenn, hafi haft eitthvað við það að athuga, ég minnist þess ekki. En þá var ákveðið að gefa tveggja ára frest og það var mjög tekið til þess í nefndaráliti þess tíma að það væri endanlegur frestur, vegna þess að það sjónarmið hefur verið uppi að Orkuveita Reykjavíkur, þetta stóra fyrirtæki á þessum markaði, yrði auðvitað að sitja við sama borð og önnur fyrirtæki, (Forseti hringir.) sem öll hafa innleitt breytingar á þessari tilskipun.

Það er því mjög sérstakt að verða (Forseti hringir.) vitni að þessari umræðu núna, að menn komi hingað eftir það sem á undan er gengið og fari (Forseti hringir.) með þær hástemmdu yfirlýsingar sem við höfum verið að hlusta á.