Orkuveita Reykjavíkur.
Virðulegi forseti. Þetta er auðvitað tímasetningarmál, það er bara þannig að ef einhver frestur yrði ekki framlengdur og fram kæmi nýtt frumvarp um það þá gilda þessi lög auðvitað um Orkuveitu Reykjavíkur eins og önnur orkufyrirtæki í landinu frá og með næstu áramótum. Orkuveitan hefur undirbúið sig í sinni starfsemi til að uppfylla þau lög sem um þetta gilda og ég tel að það sé ákaflega mikilvægt að Orkuveitan — og tek þar undir með fulltrúum annarra orkufyrirtækja — sitji við sama borð, að hún lúti sömu samkeppnisskilmálum og önnur orkufyrirtæki á markaði. Ég tel það ákaflega mikilvægt.
Þannig var nú um þetta rætt í atvinnuveganefnd á síðasta kjörtímabili og um það var ekki ágreiningur að slíkt væri ákaflega mikilvægt. Menn voru þar, þingmenn í atvinnuveganefnd og í þinginu almennt, sammála um að sá frestur sem gefinn var árið 2011 væri algerlega endanlegur. Þau skilaboð voru send fyrirtækinu, mjög skýr. Það var reyndar ekki fyrr en á síðustu metrunum í þeirri nefnd sem fallist var á það árið 2011 að fresta ætti þessu, það var ekki fyrr en á síðustu metrunum.
Það er sjálfsagt og eðlilegt mál að um þetta verði umræða hér, en mér finnst ansi holur hljómur í málflutningi vinstri grænna, þeirra þingmanna sem taka hér til máls, mér finnst ansi holur hljómur í honum í ljósi þess að þessir sömu hv. þingmenn voru ráðherrar í síðustu ríkisstjórn. Það kemur hér fram að þeir hafi ekki getað, út af stjórnarsamstarfinu, beitt sér í þessu máli. Þetta er auðvitað alveg sérstakt mál, það verður ekkert farið í það nema sem alveg sérstakt mál ef við eigum að fara að draga þessa tilskipun til baka og ógilda þau lög sem um þetta gilda. Þá þarf það mál auðvitað að koma hér til umfjöllunar í þinginu og fara síðan í þá vinnu í framhaldi sem nauðsynleg verður.
Málið er umdeilt. Ég vitnaði þó í skýrslu Hagfræðistofnunar hér áðan — ég ætla ekki að leggja dóm á það hvort málið er gott eða slæmt en það er umdeilt. En að það eigi að verða til þess að við frestum þessu eina ferðina enn, kannski bara ótímabundið um Orkuveitu Reykjavíkur og síðan þar með að skapa því fyrirtæki annað samkeppnisumhverfi, að mati annarra orkufyrirtækja, aðra samkeppnisstöðu en þeim. Nei, mér finnst það ekki eðlilegt. Hægt var að fallast á þessi sjónarmið 2010 út af mjög sérstökum aðstæðum og erfiðleikum sem okkur eru öllum kunnir. Hrunið hafði mikil áhrif á þetta fyrirtæki og það var ákveðin óvissa. Sem betur fer hefur gengið mjög vel hjá þeim að vinna úr vandamálum sínum. Þeir hafa lagst í mikla vinnu núna við að undirbúa þá breytingu sem verður í rekstri þeirra og hafa fullvissað sig um að lánardrottnar erlendis munu ekki hafa af þessu áhyggjur. Þeir virðast vera búnir að girða fyrir þá áhættu sem þeir höfðu áhyggjur af, þannig að það er mjög eðlilegt að þeir verði þá settir inn í sama samkeppnisumhverfi og önnur orkufyrirtæki, njóti engrar sérmeðferðar í því. Síðan, eins og ég sagði áðan, virðulegi forseti, er öllum fullkomlega frjálst að leggja hér fram þingmál og halda þessari umræðu áfram.
Ég heyri að hv. þm. Ögmundur Jónasson vill ræða þetta mál hér eitthvað á næstu dögum þegar það verður til endanlegrar afgreiðslu í þinginu. Honum er það auðvitað velkomið og öllum þeim öðrum sem vilja taka til máls í þeirri umræðu. En ég hef ekkert annað í hyggju, og um það var samstaða innan nefndarinnar — að undanskildum fulltrúa VG, sem var með ákveðinn fyrirvara — að þessi skyldi málsmeðferðin vera og við munum fylgja því eftir.