143. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2013.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 181/2012 um breytingu á XIX. viðauka við EES-samninginn.

74. mál
[17:35]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Vilhjálmur Bjarnason) (S):

Virðulegi forseti. Um forsögu þessa máls er mér alls ókunnugt. Ég settist hér á þing í sumar og þetta kom til umfjöllunar í nefndinni á tiltölulega saklausan máta og ég ætla ekki að fjalla um forsöguna á síðustu þingum. Ég vísa einungis til nefndarálits sem er samþykkt af meiri hluta. Ég minnist þess ekki að minnihlutaálit hafi verið lagt fram en annað vil ég ekki segja um þetta mál.