143. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2013.

frestun á innheimtuaðgerðum og nauðungarsölum.

163. mál
[18:57]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Þannig að ég hafi þetta alveg á hreinu: Væru þessi tilmæli frá ráðherrunum bindandi — yrði yfirstjórn Íbúðalánasjóðs að verða við því eða gæti hún ákveðið að gera eitthvað annað og fara ekki í þetta? Væri það bindandi fyrir Íbúðalánasjóð þannig að þeir yrðu að stöðva nauðungarsölur?