143. löggjafarþing — 32. fundur,  4. des. 2013.

varamaður tekur þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá 3. þm. Norðvest., Ásmundi Einari Daðasyni, um að hann geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Sigurður Páll Jónsson. Kjörbréf Sigurðar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki tekið sæti áður á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Sigurður Páll Jónsson, 3. þm. Norðvest., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]