leiðréttingar í fjáraukalögum til heilbrigðisstofnana.
Hæstv. forseti. Við höfum til umræðu í þinginu fjáraukalög fyrir árið 2013 sem er uppgjör á því ári sem er að líða. Við nánari skoðun á því frumvarpi hefur komið í ljós að það er svolítið tilviljanakennt hvaða þættir hafa skilað sér inn í fjáraukalögin, þ.e. af þeim samþykktum sem voru gerðar af fyrri ríkisstjórn og fyrrverandi ráðherrum. Mig langar einmitt að spyrja um tvö atriði þarna.
Það er mjög jákvætt að menn komi hér inn með t.d. átakið gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum, jafnlaunaátakið og ýmislegt fleira en tvö atriði vantar algerlega. Annars vegar var gerð samþykkt strax í janúar þegar fyrir lá að það yrði gríðarlegt álag á Landspítalanum vegna sýkinga og inflúensufaraldurs, en þá samþykkti ríkisstjórnin að gefa þau skilaboð til Landspítalans að hann mætti bæta við, opna deildir og bregðast við með viðunandi hætti og við mundum standa við fjárveitingar á bak við það.
Það kom í ljós að þetta var kostnaður upp á 125 millj. kr. og var sá liður samþykktur en hann skilar sér ekki í fjáraukalögin. Það þýðir að óbreyttu að Landspítalinn verður þá að skera niður sem því nemur til að bæta sér það upp.
Hinn liðurinn var húsaleiga heilbrigðisstofnana og er þannig til kominn að Fasteignir ríkisins fá ákveðinn hluta, það fer út og inn peningur til heilbrigðisstofnananna og rennur til viðhalds fasteigna. Þar hafði verið skorið niður í hruninu um 30%, til fasteigna. Nú brá svo við að leigan á heilbrigðisstofnanirnar var hækkuð og nam hækkunin 139 millj. kr. en það gleymdist að gera ráð fyrir að viðkomandi heilbrigðisstofnanir fengju tekjur á móti þeim útgjöldum. Að óbreyttu mun þetta þýða niðurskurð á sumum stofnunum allt upp í 20 millj. kr. sem þær verða þá að fara með sem halla yfir áramótin og bregðast við með frekari niðurskurði. Ég treysti á að hæstv. ráðherra muni lagfæra þetta og spyr hann að því hvort ég geti ekki treyst á (Forseti hringir.) að hann sjái til þess að þessar leiðréttingar verði gerðar á fjáraukalögum.