fjáraukalög 2013.
Virðulegi forseti. Mig langar aðeins að fjalla um stöðuna varðandi fjárlagavinnuna. Ég átta mig ekki alveg á því hvort eigi að taka 2. umr. á fimmtudaginn. Mér finnst ansi stutt í það og vinnubrögðin um margt einkennileg. Ég veit ekki hverju er um að kenna. Það hjálpar mér í sjálfu sér ekkert þegar svarið er ítrekað: Já, svona hefur þetta alltaf verið.
Ég held að við hljótum að vilja breyta þessu og þeim mun meiri tíma sem við höfum, því betri verður vinnan. Mér þætti gott ef ég gæti farið að fá einhver svör við því hvernig þessi vika og næsta spilast, hvort við erum virkilega að fara að taka 2. umr. fjárlaga á fimmtudaginn eins og boðað hefur verið. Eða hefur það verið boðað? Ég veit það ekki einu sinni.