143. löggjafarþing — 33. fundur,  10. des. 2013.

fjáraukalög 2013.

199. mál
[14:52]
Horfa

utanríkisráðherra (Gunnar Bragi Sveinsson) (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Mér þykir leitt hvað hv. þm. Árna Páli Árnasyni er mikið niðri fyrir, og fleiri þingmönnum, en hér kem ég til að rétta fram sáttarhönd til að allir þingmenn geti fylgst með.

Þegar dagskráin og allt liggur fyrir mun ég senda öllum þingmönnum smáskilaboð. [Hlátur í þingsal.]