fjáraukalög 2013.
Virðulegi forseti. Þetta var svo sem ekki neitt sem kom á óvart því að það er sama hvað ráðherrar í fyrri ríkisstjórn hafa verið spurðir um í gegnum tíðina, svarið byrjar alltaf á: „Hér varð hrun.“
Það eru fimm ár frá hruni. Samfylkingin hefur verið sex ár í ríkisstjórn og sat í ríkisstjórn þegar hrunið varð. Vinstri grænir voru fjögur ár í ríkisstjórn og fulltrúar þessara flokka ganga þannig fram í þessu nefndaráliti í dag að þeir gagnrýna það hvað heilbrigðisþjónustan er rekin með miklu tapi, alveg eins og það sé verið að gefa í skyn að þetta sé á ábyrgð núverandi ríkisstjórnar. Mér finnst þetta ámælisvert vegna þess að staðreyndin er sú, og því getur enginn neitað og það er lýðum ljóst, að ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna réðst að heilbrigðiskerfinu, holaði það að innan, tók heilbrigðisþjónustuna úti á landi niður og skildi Landspítalann eftir eins og fyrir honum er komið sem allir vita hvernig stendur í dag. Hún gerði gríðarlegar hagræðingarkröfur á heilbrigðisþjónustuna í heild sinni þannig að hún er vart starfhæf.
Þess vegna minni ég aftur á það að ríkisstjórnin ætlar að hafa heilbrigði í forgangi á þessu kjörtímabili. Ríkisrekstur verður að byggja á forgangsröðun. Það verður að byggja hér upp heilbrigðisþjónustu. En það er ágætt, virðulegi forseti, að fá staðfest frá fulltrúum þessara flokka í fjárlaganefnd að þeim ofbýður meira að segja sjálfum að það vanti rúma 5 milljarða inn í heilbrigðiskerfið á rekstrarárinu 2013 og gagnrýna það meira að segja, gagnrýna eigin verk, og það er gleðilegt.