143. löggjafarþing — 33. fundur,  10. des. 2013.

fjáraukalög 2013.

199. mál
[18:55]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og tek undir með honum um mikilvægi þess að menn njóti þess þegar þeir standa vel að rekstri sínum og meðferð þess almannafjár sem þeim hefur verið treyst fyrir. Það er mikilvægt að við höfum í ríkisfjármálunum hvata fyrir forstöðumenn til að standa sig vel í rekstrinum og að það sé ekki hirt af þeim jafnóðum ef þeir gera svo.

Það er ástæða til að óska hv. þingmanni til hamingju með það sem við horfum fram á, þ.e. að loka heilu fjárlagaári með halla sem gæti orðið um eða jafnvel undir 1% af landsframleiðslu sem áður var um 15%.

Ég vil byrja á því að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að núverandi ríkisstjórn, sem hefur haft ákveðna tilhneigingu til að gera fyrri ríkisstjórn ábyrga fyrir öllu yfirstandandi fjárlagaári en þó var kosið til nýs þings í aprílmánuði á þessu ári, hefði getað gripið til ráðstafana sem hefðu dregið enn frekar úr hallanum á yfirstandandi ári bæði á tekju- og gjaldahlið og hvaða ráðstafanir hefðu þá verið helstar á tekjuhliðinni annars vegar og á gjaldahliðinni hins vegar, og hvað hv. þingmaður telur að þær hefðu getað dregið mikið úr hallanum og hvaða lokatölu hefði verið hægt að sjá í ríkisfjármálunum ef betur hefði verið haldið á bæði tekju- og gjaldahlið á síðari hluta ársins eftir að hæstv. núverandi ríkisstjórn tók við.