143. löggjafarþing — 33. fundur,  10. des. 2013.

fjáraukalög 2013.

199. mál
[21:02]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég deili þeirri skoðun með hv. þm. Árna Þór Sigurðssyni að einmitt þau verkefni sem eru langtímaverkefni og hafa verið í gangi og notið styrkja munu verða í uppnámi ef menn halda ekki áfram að fylgja þeim eftir með fjárframlögum.

Það er rétt sem hv. þingmaður segir að rannsóknir og þróunarstarf eru forsenda framfara og ekki hvað síst þegar við eigum fullt af sóknarfærum. Við getum kannski ekki fjölgað mannskap í sjávarútvegi nema þá í tengdum greinum og í alþjóðaumhverfi, en við eigum gríðarleg sóknarfæri í matvælaiðnaði og alls konar hönnun og við erum búin að sækja mikið fram í skapandi greinum, í tónlistinni og alls staðar. Við megum ekki missa þetta niður. Við verðum að sækja þarna fram og reyna að búa þannig að okkar unga vísindafólki, gríðarlega hæfileikaríku fólki, að það fái tækifæri til að vinna að rannsóknum sínum hér heima.

Það er alveg rétt sem kom fram að þetta er ekki spurning um eitt ár, þetta er spurning um mörg ár. Það er líka rétt að við höfum verið háð því að fá stór verkefni eða stóra styrki úr alþjóðaumhverfinu og í gegnum EES-samninginn. Við vorum líka með mjög stór verkefni í gegnum IPA-verkefnin, það tókst að víkka mjög út það verkefni. Við erum með fleiri stór verkefni, við vorum einmitt að skoða eitt hjá Náttúrufræðistofnun Íslands upp á einar 500–600 millj. kr. Lítill hluti af því kom beint frá ríkinu, hitt kom frá Evrópusambandinu. Allt í einu er þetta í uppnámi, kannski bara fyrir klaufaskap og hvernig menn stóðu að því þegar þeir voru að fresta aðildarferlinu að Evrópusambandinu.

Ég legg áherslu á að það er jákvætt í þessum fjárauka að dreginn er til baka niðurskurður á Rannsóknasjóði og Tækniþróunarsjóði en ég treysti á að menn skoði fjárlögin miklu betur.