143. löggjafarþing — 34. fundur,  11. des. 2013.

störf þingsins.

[15:28]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég hef komið áður í þennan ræðustól og kallað eftir að þingheimur sýni kjark til að forgangsraða þegar tekist er á um málin hér. Ég hef kallað eftir forgangsröðun og hef sagt að það þurfi kjark til að forgangsraða.

Ég vil segja það, eins og hér hefur komið fram, að núverandi stjórnarflokkar hafa sýnt mikinn kjark þar sem þeir hafa náð að snúa 30 milljarða halla yfir í hallalaus fjárlög. Þeir eru búnir að finna 20 milljarða til að setja til heimilanna næstu árin, 6 milljarða til að leiðrétta skerðingar hjá eldri borgurum og öryrkjum, 5 milljarða í lækkun skatta á almennt launafólk og 4 milljarða til heilbrigðiskerfisins. Þetta gerist ekki af sjálfu sér.

Ég kalla líka eftir að minni hlutinn sýni kjark. Ég spurði um leiðir, bað um að hann kæmi með einhverjar hugmyndir um hvar mætti hagræða. Ekkert hefur komið, ekki ein tillaga. Mér finnst engin efnisleg umfjöllun um þau mál sem hér eru (BirgJ: Hvað með þjóðkirkjuna?) af hálfu minni hlutans. Ég kalla eftir efnislegri umfjöllun, ekki bara að heimta og heimta meira og koma svo með tillögur um að seilast dýpra í vasa atvinnulífs og heimila. Ætlið þið að segja mér að þið hefðuð getað fundið auknar tekjur fyrir öllu því sem ég taldi upp áðan? (BirgJ: Þjóðkirkjan …) Ég mundi vilja sjá það.

Þið þekkið umræðuna um háhitasvæðin. Ef tekið er of mikið minnkar sú auðlind og verður á endanum ekki til. Það sama á við um tekjur og ráðstöfunarfé heimilanna. (Gripið fram í: Mér finnst nú allt í lagi að …) Ef við förum endalaust ofan í vasa þeirra minnkar það sem er til umráða og það er bara búið, held ég. Þetta virkar eins. Ég kalla því eftir umhverfisstefnu vinstri flokkanna fyrir heimili landsmanna.