fjáraukalög 2013.
Virðulegi forseti. Þetta er ekki það eina sem við áteljum hæstv. ráðherra fyrir. Við tökum líka Íbúðalánasjóð, sem ég fór nokkuð vel yfir áðan. Munurinn á því máli og þessu liggur kannski stærstur í því, sem er miklu verra fyrir skattgreiðendur, að þar finnst okkur ekki hafa verið gengið nógu rösklega til verks, í að finna lausn á málefnum Íbúðalánasjóðs. Meðan við gerum það ekki þá höldum við áfram að greiða inn í Íbúðalánasjóð.
Við vitum það báðir, ég og hv. þm. Helgi Hjörvar, sem er ekki að byrja í þessu í gær, að því miður hafa fjáraukalögin ekki verið alveg þannig alla tíð — eða ég held aldrei, ég man alla vega ekki eftir því — að ekki megi gera athugasemdir við þau. Ég held að það sé alla vega góð byrjun að meiri hlutinn sé ekkert að fara í felur með hvað við erum að fara heldur benda á það til að geta bætt það. Við gerum það í öllum þeim atriðum sem við teljum mikilvægt að gera það og (Forseti hringir.) það skiptir engu máli þó um sé að ræða félaga okkar í stjórnarmeirihlutanum.