143. löggjafarþing — 34. fundur,  11. des. 2013.

fjáraukalög 2013.

199. mál
[18:37]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og heiti því að við komum til með að leita eftir þessum svörum og kalla eftir stöðu þessara verkefna sem sett voru af stað, meðal annars, eins og hér kom fram, alls kyns átaksverkefni til að aðstoða þá sem misstu vinnuna. Ég nefni starfsendurhæfingarsjóð, ríkið er einhliða að skera niður framlag sitt til þess sjóðs, sem er, eins og við vitum, 1/3 á móti lífeyrissjóðum og atvinnulífinu, og það er án samráðs við þá aðila. Ég mundi vilja fá úttekt á stöðu þeirra verkefna áður en til þess niðurskurðar kemur.

Mig langaði líka að varpa fram alls óskyldri spurningu af því að við höfum mikið verið að tala um leiðir að markmiðum og forgangsröðun í dag. Á bls. 89 í fjáraukalagafrumvarpinu er meðal annars verið að tala um 15,5 milljónir sem forsætisráðuneytið fær og hefur til innleiðingar nýrra verkefna í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar hvað varðar vernd sögulegra og menningartengdra byggða. Það er áhugavert að velta því fyrir sér hvort þarna er verið að veita inn fé sem verður svo kannski gott að skera niður þegar ráðuneytin þurfa að skera niður um 5%. Í sjálfu sér hefur þetta ekki verið skilgreint að neinu leyti. Ég spyr hvort þingmaðurinn taki undir það að þetta gæti verið tilfærsla sem auðvelt verði að láta falla út síðar.

Eins um það að flytja verkefni á milli ráðuneyta í tengslum við áhugasvið ráðherra. Það hefur komið fram í umræðunni að þetta hefur skapað mikið flækjustig. Auðvitað hefur það komið til að verkefni hafi verið flutt á milli en þarna hafa ekki komið fram fagleg rök, t.d. varðandi Hagstofuna, hvar hún á heima, eða þá þessi menningarverkefni sem mér finnst að ættu að eiga heima hjá menningarmálaráðuneytinu. Er þingmaðurinn sammála mér í því?