143. löggjafarþing — 35. fundur, 12. des. 2013.
fjáraukalög 2013.
199. mál
Herra forseti. Við höfum talað við yfirstjórn Landspítalans og þar hafa aðilar sagt skýrt við okkur að 2,5 milljarða þurfi fyrir Landspítalann. Við þingmenn Pírata munum því greiða atkvæði með öllum aukafjárveitingum til Landspítalans upp að því.
Ef við tökum þessa tölu, 2,5 milljarða, er það nákvæmlega sú upphæð sem útgerðin fékk í afslátt núna á sumarþinginu. Höldum því til haga.