143. löggjafarþing — 35. fundur,  12. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[15:28]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguræðu hans hér um forsendur fjárlaga, en það eru kannski helst tíðindi morgunsins sem gera að verkum að ég kem í andsvar við hv. þingmann því að í morgun var upplýst að Century Aluminum hefði ekki áform um að reisa álver í Helguvík að óbreyttu. Eftir því sem ég best veit var gert ráð fyrir því í forsendum þessa fjárlagafrumvarps að af framkvæmdinni yrði. Þar eð fjárlögin eru auðvitað um það sem er í undirbúningi eða á að gerast á næsta ári og nú liggur fyrir að þessi áform eru ekki fyrirhuguð, er þá ekki nauðsynlegt fyrir hv. efnahags- og viðskiptanefnd og kannski fyrst og fremst fjárlaganefnd að kalla frumvarpið aftur inn í nefnd og fara yfir það hvaða áhrif þetta hefur á tekjuhlið frumvarpsins, þær forsendur sem þar voru um fjárfestingu, einkaneyslu og tekjur ríkissjóðs almennt, og hvort markmiðið um hallalaus fjárlög standist enn?

Auðvitað þýða þessar fréttir í morgun ekki að útilokað sé að af þessu verkefni geti orðið. Kannski breytast áform fyrirtækisins og teknar verða nýjar ákvarðanir um að ráðast í þetta verkefni, en ég hefði haldið að það væri augljóst að þegar fyrir liggur yfirlýsing af hálfu fyrirtækisins um að það fyrirhugi ekki þessa framkvæmd og líti á undirbúning sem sokkinn kostnað að óbreyttu sé nauðsynlegt að taka framkvæmdina út úr forsendum fjárlaga og leiðrétta tekjuhlið frumvarpsins í samræmi við það. Ég spyr hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála því.