ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.
Virðulegur forseti. Það kemur mér á óvart að hv. þingmaður hafi ekki svör á reiðum höndum við þessu. Ég óska eftir því við forseta að gerðar verði ráðstafanir til þess að hæstv. fjármálaráðherra verði við umræðuna hér þannig að hann geti upplýst okkur um þennan þátt málsins. Ég tel að það sé algerlega óhjákvæmilegt. Það er þannig og sem formaður efnahags- og viðskiptanefndar hef ég af því áralanga reynslu að leiðrétta fjárlögin og tekjuhlið fjárlaganna á grundvelli nýrrar spár frá Hagstofunni þar sem miklu máli skiptir hvaða stórframkvæmdir eru fyrirhugaðar á næsta ári, enda augljóst að jafnvel þótt aðrir aðilar færu inn í þetta verkefni eða það hrykki í gang með einhverjum hætti aftur þá tæki það alltaf það langan tíma að verkefnið mundi ekki hafa nein teljandi áhrif þótt það gerðist á næsta ári. Væntanlega hefur verið farið í gegnum það í efnahags- og viðskiptanefnd með Hagstofunni hversu stór hluti af hagspánni fyrir komandi ár byggði á því að þessar stórframkvæmdir yrðu og hvaða áhrif það hefði ef þær féllu út. Þeirrar spurningar hefur a.m.k. verið spurt á hverju ári síðastliðin fjögur ár í yfirferð yfir tekjuhluta fjárlaganna, enda óhjákvæmilegt að kanna það atriði. Það mundi auðvitað leysa málið ef hæstv. fjármálaráðherra gæti bara verið hér við umræðuna og upplýst okkur um það hvort og hversu mikil áhrif þessi tíðindi í morgun hafa á forsendur frumvarpsins. Við hljótum öll að vona að þær séu sem minnstar og að tekjurnar haldist sem allra mest.
Ég vil að síðustu spyrja hv. þingmann hvort verðlagshækkunin núna um 3,6% í staðinn fyrir 3% leiði ekki til þess í breytingum meiri hlutans að persónuafslátturinn verði hækkaður um 3,6% í samræmi við lögin frá þeim 3% sem áætlað var við framlagningu málsins í upphafi þannig að fólk njóti þess að persónuafslátturinn rýrni ekki á milli ára.