ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar sem við stöndum að sameiginlega þrír þingmenn; auk mín hv. þingmenn Guðmundur Steingrímsson og Steingrímur J. Sigfússon. Ég vil þakka þeim samstarfið í nefndinni við undirbúning þessa álits og líka þakka formanni og framsögumanni fyrir gott samstarf í nefndinni við vinnslu málsins.
Við urðum sammála um þetta álit en hins vegar er kannski blæbrigðamunur á afstöðu okkar þriggja til einstakra mála. Það sem hér fer á eftir er því mín afstaða en nefndarálitið talar fyrir sig sjálft um það hvernig við sjáum þessa hluti sameiginlega.
Í fyrsta lagi vil ég gera að umtalsefni verðlagsuppfærslur í samræmi við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2014. Ég tel að stjórnarmeirihlutinn sé með því ráðslagi að gera alvarleg mistök. Við búum við mikinn verðbólguþrýsting, við erum föst í gjaldeyrishöftum, jöfnuður á viðskiptum við útlönd er hverfandi og sá gjaldeyrir sem við sköpum dugar okkur ekki til að greiða niður erlendar skuldir. Við þessar aðstæður, í landi í höftum, er hætta á verðbólguþrýstingi gríðarleg. Þá skiptir máli að reyna að vinda ofan af þeim þrýstingi og ríkið hefur ákveðið að setja fram verðbólgumarkmið upp á 2,5%. Það er á ábyrgð löggjafans. Það er ekkert gamanmál, og núna er meira að segja stjórnarmeirihluti í landinu sem tekur þessa stefnumörkun svo alvarlega að hann vill bæta úr ríkissjóði fólki sem verður fyrir tjóni ef verðbólgan fer ákveðið mikið frá þessu markmiði. Ábyrgð okkar allra í því að reyna að ná verðbólgumarkmiðinu er því mikil.
Þegar menn reikna síðan til fulls allar verðlagshækkanir fyrir fram til samræmis við vænta verðbólgu þrengja þeir auðvitað mjög að svigrúmi atvinnulífsins til verðlagshækkana á næsta ári. Ef ríkið hækkar með þessum hætti eins og hér er gert ráð fyrir er farinn nokkurn veginn fjórðungur af svigrúminu til verðlagshækkana á næsta ári. Ef sveitarfélögin mundu fylgja þessu fordæmi væri annar fjórðungur farinn og árið ekki byrjað.
Þess vegna er svo mikilvægt að vinda ofan af þessari þróun. Og núna þegar við höfum verið að binda vonir við að við næðum kjarasamningum á almennum markaði og við opinbera starfsmenn, samningum sem sköpuðu grunn fyrir aukna velsæld og traustar kjarabætur, er alveg ljóst að verðbólguvæntingar hafa lykiláhrif á það hvort slík tilraun tekst. Því miður horfir ekki byrlega um það núna vegna þess að aðilar eru ekki að ná saman og vegna þess að ríkisstjórnin hefur verið að ráðast í hvert verkefnið á fætur öðru sem er til þess fallið að setja í uppnám forsendur kjarasamninga.
Því er það mín afstaða og við munum gera um það tillögu í Samfylkingunni að fallið verði frá verðlagshækkunum í þetta skipti. Ástæðan er sú að við þessar aðstæður núna séu þær sérlega verðbólguhvetjandi. Ég get alveg fallist á það sjónarmið að almennt séð sé gott að verðuppfærsla einstakra skatta og gjalda sé reglubundin en það er spurning hvort ríkið þurfi að verða á undan hækkuninni að uppfæra, eins og gert er ráð fyrir nú, að hækka fyrir fram gjöldin til samræmis við svarta verðbólguspá næsta árs. Slík ráðstöfun mundi kynda undir verðbólgu.
Þess vegna verður það tillaga okkar í Samfylkingunni að ríkisvaldið fylgi góðu fordæmi sveitarfélaganna og haldi aftur af gjaldskrárhækkunum til þess að skapa svigrúm fyrir hóflegar launahækkanir og draga úr verðbólguþrýstingi. Kostnaður við þetta er metinn röskur milljarður, tæpar 1.200 milljónir ef ég man rétt. En flestar greiningar sem gerðar hafa verið, t.d. vönduð greining sem unnin var fyrir Reykjavíkurborg áður en hún reið á vaðið að þessu leyti, benda til þess að borgin hagnist á aðgerðinni, þ.e. að kostnaður borgarinnar af verðbólgu sé svo mikill að það borgi sig að stíga þetta skref í trausti þess að aðrir fylgi með.
Það eru ekki bara borgarfulltrúar okkar Samfylkingarinnar í Reykjavík sem hafa lagt tillögur af þessu tagi fram. Í Kópavogi hefur verið samþykkt tillaga bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar um að falla frá gjaldskrárhækkunum. Í Hafnarfirði er haldið aftur af gjaldskrárhækkunum eins og kostur er og við höfum lagt á það kapp um allt land að reyna að fylgja þessari stefnu og greiða þar með leiðina fyrir skynsamlega og farsæla kjarasamninga á erfiðum tímum.
Næsti þáttur sem við gerum að umtalsefni í áliti okkar varðar lækkun endurgreiðsluhlutfalls til nýsköpunarfyrirtækja. Ég held að fátt sé misráðnara við núverandi efnahagsaðstæður en að éta þannig útsæðið. Satt að segja finnst mér eiginlega að hin gamla líking um að éta útsæðið eigi ekki einu sinni við um hversu vitlausar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar eru gagnvart uppbyggingu tækni- og þekkingargreina akkúrat nú. Þær minna mig frekar á söguna af gamla karlinum sem var svo nískur að hann vildi vita hvort hrossið hans gæti lifað á loftinu einu saman og gerði á því tilraun. Hann minnkaði stöðugt fóðrið við hrossið og tilraunin gekk mjög vel framan af og hefði áreiðanlega tekist ef hrossið hefði ekki tekið upp á því að drepast daginn áður en það átti að lifa á loftinu algjörlega einu.
Það er nefnilega þannig að ef við veitum ekki fé og ef við fjárfestum ekki í þekkingar- og tæknigreinum á þeim tímum sem við lifum nú erum við að drepa framtíðararðsemi þjóðarinnar. Það gæti meira að segja verið réttlætanlegt að taka lán til að fjárfesta í framtíðinni að þessu leyti.
Það er athyglisverð grein í dag í Fréttablaðinu eftir Davíð Lúðvíksson og Hauk Alfreðsson sem fjalla um árangurinn af opinberri aðstoð við nýsköpun og tækniþróun á Íslandi. Það er ekki einu sinni verið að flytja okkur einhvern boðskap frá útlöndum, það er ekki einu sinni verið að segja okkur einhverjar ævintýrasögur sem menn geta efast um vegna þess að þær komi einhvers staðar frá langtíburtistan. Nei, það er verið að taka einföld dæmi af árangrinum af fjárfestingum í tækni og þróun á undanförnum árum.
Ef horft er til þeirra fyrirtækja sem hafa fengið viðurkenningu Vaxtarsprotans fyrir góðan vöxt gefa þau öll svipaða mynd. Ef skoðað er úrtak þrettán fyrirtækja sem fengu styrki úr Tækniþróunarsjóði árið 2005 jókst heildarvelta þeirra úr 20 milljörðum í 118 milljarða á árinu 2012. Starfsmannafjöldinn fór á tímabilinu úr 500 í 1.000 og fyrirtækin greiddu framlög ríkisins tuttugu- til fjörutíufalt til baka á tímabilinu.
Það er meira að segja hægt að réttlæta að taka lán til þess að fjárfesta í uppbyggingu af þessum toga. Og þegar við horfum síðan á sjúkdómseinkenni íslensks efnahagslífs einmitt nú, svo að segja engan afgang á viðskiptajöfnuði lengur þrátt fyrir gríðarlega lágt raungengi og þar af leiðandi allt of lítinn gjaldeyri til greiðslu skulda, blasir við að það verður að finna fjölbreyttari fjárfestingartækifæri, það verður að hækka þekkingarstigið og það verður að auka virðið af því sem við gerum í landinu. Það er satt að segja sárgrætilegt að þessi ríkisstjórn sem nú situr skuli vera svo afturúrkreistingsleg í hugarfari að hún skuli ekki hafa þann metnað til að bera sem ríkisstjórn sömu flokka hafði þó til að bera hér upp úr aldamótum þegar stigin voru tímamótaskref í uppbyggingu rannsóknar- og þróunarsjóða í landinu og rannsóknarráð var sett á fót í núverandi mynd.
Það er tímanna tákn að þegar þessir flokkar setjast nú aftur í ríkisstjórn er hugmyndaheimur þeirra orðinn svo þröngur, viðhorf þeirra til atvinnuþróunar svo gamaldags að pófessorar leggja það við að segja sig úr rannsóknarráði því að þeir vilja ekki vinna með ríkisstjórninni á þeim forsendum sem hún leggur upp með. Það er ekki þannig að verið sé að hverfa frá stefnu síðustu ríkisstjórnar, það er verið að hverfa frá stefnu sömu flokka frá því í upphafi aldarinnar
Það er líka vert að hafa í huga að ef dregið er úr, eins og lagt er til hér, endurgreiðslum af rannsóknar- og þróunarkostnaði er ekkert í hendi um það að þau störf sem rannsóknum og þróun fylgja haldist í landinu. Fjöldamörg fyrirtæki í þekkingargreinum á Íslandi eru komin með erlendar höfuðstöðvar vegna þess að við höfum kosið að hrekja þau úr landi með vonlausum gjaldmiðli og gjaldeyrishöftum. En þau halda samt stórum hluta þróunarstarfs síns hér á landi, ekki hvað síst vegna þess að búið hefur verið í haginn fyrir þá starfsemi hér á landi.
Ef menn ganga svona langt og grimmt fram eins og ríkisstjórnarmeirihlutinn leggur til nú er líka verið að ryðja þessum verðmætu störfum úr landi og draga þar með enn úr fjölbreytni í atvinnuháttum í landinu, draga úr ávinningi þjóðarinnar af uppbyggingu þekkingar, fækka enn möguleikunum sem okkar best menntaða fólk hefur á að flytja hingað heim að námi loknu.
Ég held þess vegna að það sé mjög mikilvægt að horfa á þessi mál í víðara samhengi. Ríkisstjórnin fylgir afturúrkreistingslegri stefnu, eins og ég sagði áðan, stefnu sem búið er að afsanna um öll Vesturlönd. Hún fylgir stefnu sem hefur leitt til ófarnaðar; að skera niður og skera jafnvel niður hagvaxtarhvetjandi verkefni. Um öll Vesturlönd er verið að hverfa frá þessari stefnu og menn eru að átta sig á hversu óskynsamleg hún er. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn skrifar heila skýrslu um mikilvægi þess að menn greini á milli ríkisútgjalda, að menn verji þau ríkisútgjöld sem geti skapað verðmæti og skeri niður aðra þætti og tekur m.a. dæmi af vel heppnuðum aðgerðum okkar hér á landi á síðustu árum að því leyti.
Það er ekki eins og ég sé að tala fyrir einhverri vinstri villu. Ég nefni bara nýlega úttekt Viðskiptaráðs Íslands sem vísað er í í nefndarálitinu þar sem Viðskiptaráð færir sannfærandi rök fyrir því að mjög óskynsamlegt sé við núverandi aðstæður að hætta hagvaxtarhvetjandi verkefnum. Greining Viðskiptaráðs Íslands er sú að ekki sé réttlætanlegt að ná jöfnuði í ríkisútgjöldum við núverandi aðstæður ef það kostar að fórnað sé verkefnum sem geta byggt upp velsæld til lengri tíma, byggt upp hagvöxt á næstu árum. Það eru, eins og ég hef nú rakið ítarlega, engin verkefni betur til þess fallin að byggja upp hagvöxt og velsæld á næstu árum en nákvæmlega fjárfestingar í rannsóknum og þróun.
Það er mjög athyglisvert að lesa þessa greiningu Viðskiptaráðs því að þeir hafa hingað til alltaf talað fyrir mjög einfaldri hagfræði um að jöfnuður í ríkisútgjöldum skipti öllu máli og það skipti máli að skera niður ríkisútgjöld framar öllu, það sé sjálfstætt markmið til að halda jöfnuði í ríkisfjármálum. Almennt séð er ég sammála þeirri stefnu, það er mjög mikilvægt að eyða ekki um efni fram og safna ekki skuldum. En menn verða að geta fjárfest í framtíðinni og ef valkosturinn er sá að fara í æfingar eins og þær að láta hrossið lifa á loftinu einu saman, eins og þessi ríkisstjórn er að reyna að láta atvinnulífið í landinu gera, verður engin uppbygging hér. Það mun hafa afleiðingar, alvarlegar afleiðingar. Það mun fela í sér afturhvarf, ekki til þess tíma sem við lifðum fyrir hrun heldur afturhvarf langt, langt aftur. Árangrinum af uppbyggingarstarfinu — sem rétt er að hrósa fyrrverandi ráðherrum fyrir, Birni Bjarnasyni, Davíð Oddssyni, Halldóri Ásgrímssyni — þeim ávinningi verður öllum kastað á glæ. Og allt það sem við byggðum á því fordæmi á síðasta kjörtímabili verður líka að engu.
Virðulegi forseti. Við fjöllum líka í nefndarálitinu um hækkun skráningargjalda opinberra háskóla. Það er kannski ekki stórmál að skráningargjöld í háskóla séu hækkuð. Við gerðum það á síðasta kjörtímabili vegna þess að það þurfti að tryggja Háskóla Íslands meira fé og við töldum það réttlætanlegt í þeim erfiðu aðstæðum sem þá voru. Sú 10 þús. kr. hækkun fór óskipt til Háskóla Íslands.
Nú bregður ríkisstjórnin hins vegar á það ráð, sem hún gerir víða annars staðar í kerfinu, í tryggingagjaldinu, í útvarpsgjaldinu, að éta að innan markaða tekjustofna. Hún hækkar skráningargjöld til Háskóla Íslands um 213 millj. kr. en háskólinn fær bara 39,2 millj. kr. af þeirri hækkun. Afgangurinn rennur í ríkissjóð. Þannig gerir ríkisstjórnin skipulega, alveg eins og með útvarpsgjaldið þar sem RÚV fær ekki notið þess til fulls, alveg eins og með tryggingagjaldið sem er tekið í ríkara og ríkara mæli til þarfa ríkisins, alls staðar sama hlutinn. Hún er að veikja hið almenna tekjuöflunarkerfi ríkisins. Hún er með útvarpsgjaldinu og þessum skráningargjöldum að ganga fram hjá því kerfi sem tryggir okkur í dag mannsæmandi samfélag, tryggir okkur að þeir sem minnst hafa milli handanna borgi minnst og þeir sem mest hafi milli handanna borgi mest. Þvert á móti leggur ríkisstjórnin meiri vigt á nefskatta þannig að maður sem er atvinnulaus og stúlka sem er í skóla borgi jafn háan skatt til ríkisins og hæstv. forsætisráðherra eða auðmaður úti í bæ.
Það er þessi öfugþróun sem er skipuleg pólitísk stefna að því er virðist hjá ríkisstjórninni. Það er verið að flytja skattbyrði af þeim betur stæðu yfir á þá lakar settu með öllum tiltækum ráðum. Og hér er fundinn nýr hópur burðugra skattþegna, hér er búið að finna hin breiðu bök og það eru stúdentar við Háskóla Íslands. Þeir eiga að borga meira í sameiginlega sjóði en venjulegir launamenn af venjulegum launatekjum. Þetta er ekki bara ósanngjarnt, þetta er ekki bara siðlaust heldur felur þetta auðvitað líka í sér að grafið er undan opinberri þjónustu. Allir verða ósáttir. Nemendur hugsa: Af hverju í ósköpunum fæ ég ekki betri þjónustu hér í háskólanum, ég er búinn að borga þetta háa skráningargjald? Og við öll hlustum á útvarpið og heyrum það beinlínis í viðtækjunum molna dag frá degi en þurfum samt að borga útvarpsgjaldið og við hugsum: Assgoti erum við að fá lítið fyrir peninginn.
Með þessu er verið að grafa undan opinberri þjónustu. Hin samfélagslega samstaða um að greiða þessi gjöld mun hrynja vegna þess að fólk fær ekki þjónustuna sem það telur sig vera að borga fyrir. Enn og aftur er þessi ríkisstjórn því að feta inn á dapurlegar brautir, versta hörmungarkapítalisma sem við höfum séð á Vesturlöndum á undanförnum áratugum. Það er grafið undan jöfnunarhlutverki tekjuskattskerfisins, það er grafið undan sameiginlegri ábyrgð og réttlátri dreifingu byrðanna og búið til kerfi nefskatta.
Ég ætla bara að minna hv. þingmenn stjórnarflokkanna á það hvernig fór fyrir þeim stjórnmálaleiðtogum af sama væng sem síðast gengu til enda þá leið að innleiða nefskatta og rifja upp hvernig breskt samfélag var orðið útleikið í nefskattastyrjöldinni miklu þegar Margrét Thatcher var búin að breyta öllu útsvari yfir í nefskatta og hvernig samfélagið hrundi í hausinn á henni. Það er vert fyrir þingmenn stjórnarmeirihlutans að minnast þeirra örlaga og fá kannski örlítinn vott af efa um skynsemina sem felst í því að halda lengra á þessari braut.
Að því er varðar hámark mánaðarlegra greiðslna í fæðingarorlofi vekjum við athygli á því í álitinu að hækkunin er smávægileg, einungis um 20 þús. kr. Í stað þess að standa við lengingu foreldra- og fæðingarorlofs er tekjustofn Fæðingarorlofssjóðs nærri því helmingaður og í umfjöllun nefndarinnar er ýjað að því að ekki sé rétt að stefna að lengingu fæðingarorlofsins því að það hafi enga þýðingu við núverandi aðstæður því að karlar taki ekki fæðingarorlof lengur vegna þess að hámarksfjárhæð hafi verið lækkuð. Ekkert kom fram í umfjöllun nefndarinnar sem rennir stoðum undir þessa fullyrðingu. Þvert á móti virðist hér enn einu sinni vera á ferðinni lífseig flökkusaga um að ástæða þess að karlar taki síður fæðingarorlof á síðustu árum sé sú að hámarksgreiðslur hafi lækkað.
Þegar ég var í félagsmálaráðuneytinu gerðum við könnun á því hvernig þessu véki við vegna þess að við óttuðumst að þetta væri ástæðan. Þá kom í ljós að hlutfall þeirra karla sem tóku ekki fæðingarorlof var mjög áþekkt, hvort sem þeir voru með laun undir hámarkinu eða yfir. Með öðrum orðum, það var ekki hægt að sjá neina beina tengingu milli þess að menn væru hálaunamenn eða láglaunamenn og hvort þeir tóku fæðingarorlofið eða ekki. Þvert á móti virðist mega ætla að viðkvæm staða á vinnumarkaði valdi því einfaldlega að þeir karlar sem ekki þvingast til þess að fara af vinnumarkaði af líkamlegum ástæðum kjósi frekar að sleppa því af ótta við það að þeir séu að losa um starf sitt með því að fara og þeir óttist að starfið verði lagt niður í kjölfarið og þeim sagt upp. Það er ýmislegt sem bendir til að það sé frekar skýringin.
Við óskuðum eftir því í meðförum nefndarinnar að fá frekari skýringar að þessu leyti frá velferðarráðuneytinu en fengum ekki. Og ég tel eðlilegt að málið fari til nefndar milli 2. og 3. umr. og kannað verði sérstaklega hjá velferðarráðuneytinu hvernig þessu víkur við og fengin tölfræðileg gögn til þess að annaðhvort hrekja þessar staðhæfingar meiri hlutans eða finna betri skýringar. Mér finnst ekki í lagi að ganga út frá því að ekki sé hægt að lengja fæðingarorlof við núverandi aðstæður á grundvelli flökkusagna um að það sé þýðingarlaust vegna þess að feður muni hvort sem er ekki taka það.
Það er nú farið að styttast í tíma mínum þannig að ég veit ekki hvort ég næ að klára allt sem ég ætlaði að fjalla um, en við fjöllum hér einnig um frestun hækkunar framlags til starfsendurhæfingarsjóða. Það er auðvitað mjög sérkennilegt því að við gagnrýnum hér lækkun á framlagi til starfsendurhæfingarsjóða, sem er samt ekki jafn rosaleg og við heyrum núna að fjárlaganefnd sé að leggja til í endanlegri afgreiðslu sinni. Við höfum heyrt að verið sé að ganga jafnvel lengra. En milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins er þríhliða samkomulag um fyrirkomulag starfsendurhæfingar og ríkið er samningslega skuldbundið til að virða það samkomulag. Mér þykir enginn bragur á því að ríkisvaldið breyti einhliða slíku samkomulagi. Það er eðlilegt að menn ræði það við aðila vinnumarkaðarins og finni þá á því fleti.
Við gerðum það á síðasta kjörtímabili, við sömdum við aðila vinnumarkaðarins um seinkun greiðslna í þetta kerfi — og þeir sýndu því mikinn skilning — til þess að mæta erfiðri stöðu ríkissjóðs. Þeir væru því áreiðanlega til viðtals við ríkisstjórnina, en það er svo merkilegt með þessa ágætu ríkisstjórn, sem talar á tyllidögum um samráð og samvinnu, að ég hef aldrei heyrt af því að hún hafi ótilneydd talað við nokkurn mann, nokkur samtök eða nokkurn stjórnmálaflokk. Við lesum um allt í blöðunum.
Undir lok meðferðar nefndarinnar var bætt við þremur nýjum köflum við frumvarpið, köflum um hækkun úrvinnslugjalds sem við höfðum lítil tök á að fara yfir en sáum við fyrstu sýn ekki mikið athugavert við, og síðan breytingar á slysatryggingum, sem ég verð að segja jafnframt að við höfðum ekki fullnægjandi tækifæri til að meta. Yfirlýst markmið þeirra breytinga er að forða ríkinu frá því að greiða kostnað vegna eiginlega oftrygginga eða tvítrygginga. Ég get verið sammála því markmiði og tek undir með hv. þm. Pétri Blöndal hér áðan að það sé æskilegt að ríkið greiði ekki fyrr en almennar tryggingar séu þurrausnar. En okkur gafst einfaldlega ekki færi á því að fá fullnægjandi skýringar á því hvort mögulegt væri að einhver réttindarýrnun fælist í þessari breytingu. Það væri annað atriði sem ég mundi vilja geta kannað í nefndinni í frekari umfjöllun milli 2. og 3. umr.
Ég er að falla á tíma en ég ætla samt að ná að segja nokkur orð um komugjöld á sjúkrahús. Ég get ekki fallist á að fara þá leið sjúklingaskatta sem ríkisstjórnin leggur hér til. Menn byrjuðu á hinu sérkennilega legugjaldi, sem var nú svo hlægilegt og hjákátlegt, sérstaklega í ljósi þess að ríkisstjórnin vildi ekki innheimta gjald af fullborgandi erlendum ferðamönnum en hún vildi innheimta gjald af íslenskum sjúklingum. Þetta varð auðvitað þjóðinni slík hneykslunarhella, enda svo ótrúlega ógeðfelld hugsun, að ríkisstjórnin rann á rassinn með það og var nú eitt af þeim atriðum sem ríkisstjórnin var runnin á rassinn með áður en búið var að mæla fyrir fjárlagafrumvarpinu í hinu víðfræga viðtali við hæstv. forsætisráðherra í tíufréttum sjónvarps að kvöldi stefnuræðudags þegar hann var byrjaður að vera á harðahlaupum undan sínu eigin fjárlagafrumvarpi.
Hér er komið með nýja útfærslu sem eru innskráningargjöld á sjúkrahús. Við í Samfylkingunni erum ekki sammála þessu gjaldi og getum ekki sætt okkur við það. Þar sem að störfum er nefnd um endurskipulagningu á hlutdeild í kostnaði sjúklinga teljum við eðlilegt að svona mál séu rædd þar. Og að bæta við nýjum álögum á sjúklinga án skýrrar efnislegrar röksemdar til að ná inn einhverjum 200 millj. kr. þegar ríkisstjórnin afsalar sér hægri vinstri tekjum sem augljóslega eru innheimtanlegar, þegar útgerðin skilar Íslandsmeti í afkomu á síðasta ári þrátt fyrir að hafa greitt þessi voðalegu veiðigjöld, er auðvitað óskiljanlegt að elta sjúklinga sem eiga ekki val um það hvort þeir eru innritaðir eða ekki og láta þá borga peninga fyrir það. Það er ekki eins og fólk eigi val, ákvörðunin er ekki í höndum sjúklingsins sjálfs. Ákvörðun um innlögn er í höndum annars aðila. Nú þegar getur Landspítalinn ekki innheimt þau gjöld sem honum er samkvæmt lögum gert að innheimta af sjúklingum þannig að það er algjörlega undir hælinn lagt hvort þessi gjöld innheimtist nokkru sinni. Sú staðreynd ætti enn frekar að verða okkur til umhugsunar og efasemda um það hvort hér sé verið að fara skynsamlega leið.
Virðulegi forseti. Tími minn er á þrotum en ég vonast til þess að halda áfram umfjöllun um einstaka þætti síðar í umræðunni.