ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.
Virðulegi forseti. Ef hægt væri að skapa verðmæti með því að skera alltaf niður í ríkiskerfinu þá væri um margt öðruvísi umhorfs á Vesturlöndum en það er í dag. Þvert á móti er þessi kenning afsönnuð og það er auðvitað þannig … (Gripið fram í.)Við skárum niður eins og við þurftum til þess að reyna að ná jöfnuði og við skárum mjög mikið niður en við vörðum líka ákveðna þætti. Það sem hv. þingmaður er að verja hér núna er ekki það — og hann er að tala um að vera góður við einhverja, ég er ekki að tala um að gefa stúdentum skráningargjöldin, ég er ekki að tala um að rukka þá ekki fyrir raunverð á skráningu. (PHB: Það er það sem gert er.) Nei, það er verið að leggja sértækan skatt á námsmenn umfram skráningarkostnað.
Það er verið að skila háskólanum 39,2 millj. kr. Afgangurinn rennur í ríkissjóð. Það er verið að leggja sértækan skatt á tiltekinn þjóðfélagshóp án nokkurra efnislegra röksemda. Það er bara andstyggð og ekkert annað. Það hefur ekkert að gera með aga í ríkisfjármálum. Af hverju er þá (Forseti hringir.) ekki lagður sérstakur skattur á auðmenn? (Forseti hringir.) Af hverju er ekki lagður sérstakur skattur á útgerðarmenn?