ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir upplýsandi svör og vil bara inna eftir því hvort gert sé ráð fyrir þessum breyttu spám um verðlagsþróunina á næsta ári, þ.e. 3,6% en ekki 3%, í tölum í fjárlögunum eins og þau liggja núna fyrir eða hvort það á eftir að leiðrétta útgjaldatölurnar í frumvarpinu í samræmi við þessi lögfestu verðtryggingarákvæði sem hv. þingmaður vísar til.
Ég vildi síðan nota tækifærið og inna þingmanninn eftir því hvort ekki hafi verið umfjöllun í nefndinni í tengslum við verðlagsbreytingar á gjöldum, kannski einkanlega um gjöld á eldsneyti. Það rifjaðist upp fyrir mér þegar hæstv. fjármálaráðherra gekk hér í salinn að hv. þm. Bjarni Benediktsson flutti þingmál á síðasta kjörtímabili þar sem sérstaklega voru lækkuð gjöld á eldsneyti og það talið auka tekjur ríkissjóðs ef eitthvað væri vegna þess að það mundi auka söluna á eldsneytinu. Mikil áhersla var lögð á að það væri óhæfuverk að láta gjöld á eldsneyti fylgja verðlagsþróun og eldsneytisverð væri orðið svo hátt að þessi gjöld ættu að standa í stað.
Þess vegna kom mér nokkuð á óvart að sjá tillögur í frumvarpinu um hækkanir á eldsneytisgjöldum eftir þennan málflutning hér allt síðasta kjörtímabil. Ég spyr hvort þingmenn Sjálfstæðisflokksins í nefndinni hafi ekki tekið til skoðunar hvort það væri ekki bara misskilningur að hækka eldsneytisgjöldin eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu, hvort óbreytt eldsneytisgjöld mundu ekki samkvæmt þeirra eigin fullyrðingum og þingmálum skila sömu eða meiri tekjum eins og það gerir þegar þau eru nú hækkuð.