143. löggjafarþing — 35. fundur,  12. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[17:04]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Um leið og ég þakka forseta fyrir góða fundarstjórn og hæstv. fjármálaráðherra fyrir að koma til umræðunnar vil ég fá að ræða dagskrá morgundagsins. Það var fyrirhugað að hefja hér 2. umr. fjárlaga.

Það kom fram í morgun að Century Aluminum gerir ekki lengur ráð fyrir því að ráðast í álverið í Helguvík að óbreyttu og ég vildi þess vegna inna hæstv. fjármálaráðherra eftir því að hve miklu leyti sú framkvæmd væri forsenda fyrir fjárlagafrumvarpinu eins og það liggur nú fyrir. Hversu þungt vegur það í hagspánni fyrir næsta ár og hve mikil áhrif hefur það á tekjurnar á komandi ári að framkvæmdin er ekki lengur á dagskrá? Þarf fjárlaganefnd að taka málið aftur inn til sín, fara yfir þessar tölur og leiðrétta frumvarpið í samræmi við þennan nýja veruleika eða hefur það ekki þau áhrif að tefja 2. umr. um fjárlögin á morgun? Má treysta því að það sé í samræmi við þann veruleika sem nú blasir við?