ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.
Virðulegur forseti. Ég þakka spurninguna. Því miður gat ég ekki komið inn á þetta í ræðu minni. Það er alveg rétt að hlutur sjúklinga hefur aukist og mér finnst mikilvægt að hann aukist ekki meira. Hins vegar segir það líka aðra sögu, að það er gjaldtaka í heilbrigðiskerfinu, og mér finnst mikilvægt að það heildarsvið allt saman sé réttlátt.
Mín afstaða til legugjalda, eða þess sem hefur verið breytt í komugjöld, er sú að mér finnst að það verði, ef við ætlum að taka slíkt upp, að vera í samhengi við heildarendurskoðun á gjaldtöku af sjúklingum sem fer fram þessa dagana í nefnd. Mér finnst ekki endilega réttlátt eins og kringumstæðurnar eru núna að sumir sjúklingar, ef þeir eru með ákveðna tegund af sjúkdómi og þurfa innlögn borgi ekki neitt en aðrir sem fá göngudeildarþjónustu borgi (Forseti hringir.) jafnvel mjög háar fjárhæðir. Mér finnst það ekki sanngjarnt. Mér finnst mikilvægt að hlutur sjúklinga (Forseti hringir.) aukist ekki og horft sé á þetta í heildarsamhengi. Þess vegna get ég ekki stutt komugjöld að þessu sinni.