143. löggjafarþing — 35. fundur,  12. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[17:43]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég og hv. þingmaður erum hér að leysa málin og mér finnst þetta alveg ágætislausn. Mér sýnist reyndar, þegar ég lít yfir hvernig ríkisreksturinn lítur almennt út, að þá sé þetta einfaldlega spurning um hvað menn vilja. Hv. þingmaður minntist á 0,8% tekjuskattslækkun á milliþrepinu. Mér finnst mjög mikilvægt að lækka skatta. Ég held að skattar séu of háir á Íslandi. Maður sér það þegar maður til dæmis skoðar bókhald hjá einyrkja og hve mikill hluti af innkomu hans fer til ríkisins. En það verður að gera það á einhvern sjálfbæran hátt. Það verður þá líka að leita annarrar tekjuöflunar og skattalækkun verður að hafa einhver áhrif. Þessi skattalækkun hefur þau áhrif að fólk er að fá þúsundkall á mánuði en kostar hins vegar 5 milljarða fyrir ríkið. Það finnst mér slæm skattapólitík. Ég mundi vilja hætta við hana og nota peningana frekar til annars konar hagsbóta fyrir almenning, t.d. gegnum Fæðingarorlofssjóð.