143. löggjafarþing — 35. fundur,  12. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[20:44]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Við fjöllum um frumvarp til laga um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2014. Ég ætla að stikla á þeim atriðum sem þar koma fram og byrja á að fara hér yfir verðlagsforsendur og verðlagsuppfærslur í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2014, þ.e. uppfærslur einstaka skatta og gjalda.

Ég verð að segja að ég hef áhyggjur af því að menn ætli að fara á fullt í að hækka gjöld og skatta miðað við verðlagsforsendur, þ.e. um 3%. Eins og komið hefur fram í umræðunni eru kjarasamningar opnir. Aðilar vinnumarkaðarins hafa lýst miklum áhyggjum af því að verðlag fari upp á við og ávinningur hugsanlegra kjarabóta brenni upp í verðbólgubáli. Nú þegar liggur fyrir að borgarstjórn Reykjavíkur hefur tekið áskorun aðila vinnumarkaðarins og hætt við gjaldskrárhækkanir og styður þar með við kjarasamningsgerð og þær forsendur sem menn leggja þar upp, að hægt sé að varðveita kaupmáttinn í framhaldinu. Stéttarfélög hafa skorað á sveitarfélög í landinu að gera slíkt hið sama. Það sem stendur upp úr er auðvitað að hafa hér sem lægsta verðbólgu og helst enga og efnahagslegan stöðugleika, nokkuð sem við höfum verið að keppast við sem þjóð í áratugi en því miður illa gengið.

Komið var inn á það hér áðan að gerðir hafi verið svokallaðir þjóðarsáttarsamningar á sínum tíma. Þar höfðu menn þetta markmið uppi og ríkið kom að þeim málum og menn töldu sig vera að snúa niður verðbólgudrauginn með því að halda aftur af verðlagshækkunum og launamenn færu þá fram með ábyrgum hætti í kröfugerð sinni. Mér sýnist að ríkið ætli ekki að taka höfuðborg landsins sér til fyrirmyndar í þeim efnum og halda aftur af hækkunum hjá sér. Ég hef virkilega áhyggjur af því hvað þetta muni þýða því að áhrif hækkana á kjarasamningsgerð geta verið mikil. Það er búið að vísa almennum kjarasamningum, þ.e. þeim sem eru lausir hjá almennum stéttarfélögum, til ríkissáttasemjara svo að þetta hefur mjög neikvæð áhrif, að ég tel, hvað varðar að ná niðurstöðu í gerð kjarasamninga. Það getur líka haft afleiðingar til framtíðar að hleypa hérna af stað víxlverkun launakrafna og verðlagshækkana eins og er þekkt í gegnum tíðina.

Eins og ég segi hafa aðilar vinnumarkaðarins eindregið hvatt ríkisvaldið til að ganga ekki fram með hækkanir og halda frekar að sér höndum, en það hefur ekki verið áhugi fyrir því að hlýða á þau varnaðarorð sem þaðan hafa komið.

Svo kemur fram í þessu frumvarpi að það eigi að lækka endurgreiðsluhlutfall til nýsköpunarfyrirtækja. Það er eitt af því sem ég hreinlega skil ekki. Hvaða meinbugur er á þessari ríkisstjórn? Allt sem er til framfara og er eitthvað nýtt til að breikka flóru okkar í atvinnurekstri og auka hér fjölbreytni og tekjur samfélagsins, það sem ungt fólk horfir til í dag, að hafa sem flesta valkosti í fjölbreyttu atvinnulífi — þessum nýju atvinnugreinum telji menn sig ekki geta sem samfélag lagt lið heldur höggva niður allt sem hefur verið gert og leggja stein í götu nýsköpunar og framþróunar í landinu. Mér finnst þetta vera kolröng skilaboð út í samfélagið. Það þýðir ekki bara á tyllidögum að tala um skapandi greinar og mikilvægi nýsköpunarfyrirtækja ef menn sýna það síðan ekki í verki þegar á reynir.

Meira að segja Viðskiptaráð Íslands hefur varað við að ríkisvaldið keppist ekki svo við að ná niður fjárlagahallanum að það verði á kostnað þess að styðja við verkefni sem geta verið hagvaxtarhvetjandi og þeim sé fórnað til að ná jöfnuði í ríkisfjármálum. Það er mikið til í því. Við vitum að þessi fyrirtæki nota í upphafi stærstan hluta fjármagnsins í vinnulaun og þau þurfa því stuðning meðan þau eru að komast af stað. En þau geta á stuttum tíma náð að fóta sig ef þau fá stuðning og skila þá samfélaginu miklum hagnaði.

Mig minnir að skapandi greinar hafi skilað um 15 milljörðum kr. í gjaldeyristekjum í fyrra. Þessar greinar vaxa og dafna en ríkisvaldið sendir þau skilaboð að ekki sé hægt að styðja við nýsköpun með sómasamlegum hætti, í þessu tilfelli með lækkun endurgreiðsluhlutfalls á nýsköpunarfyrirtæki.

Ég átti þess kost í morgun að fá á fund atvinnuveganefndar fulltrúa frá Hönnunarmiðstöð Íslands. Það var mjög áhugavert. Þeim sem höfðu opnað fyrir umsóknir í fyrsta sinn nú í haust brá í brún þegar fjárlög fyrir næsta ár voru kynnt því að þar var alls ekki gert ráð fyrir hinum nýstofnaða sjóði. Þetta ber því allt að sama brunni. Hönnun er nefnilega lykilatriði í nýsköpun og nýjum atvinnutækifærum. Þetta er til þess að gera ung grein sem þarf stuðning. Ríkisvaldið hefur stutt Hönnunarmiðstöð Íslands. Það hafa komið um 15 milljónir kr. frá atvinnuvegaráðuneytinu og 15 milljónir kr. frá menntamálaráðuneytinu og síðan hefur hönnunarmiðstöðin aflað sér tekna með öðrum hætti í gegnum atvinnulífið. Þarna var sem sagt kominn samkeppnissjóður á sviði hönnunar og var upphaflega markmiðið að lagðar yrðu í hann um 200 milljónir kr. og 45 milljónir kr. væru upphafsfé sem ætti að byggja á.

Nú eru skilaboðin þau að ekki eigi að leggja fjármagn til þessa sjóðs á næsta ári. Mér finnst það vera mjög dapurlegt. Við höfum búið við mjög einhæft atvinnulíf stærstan hluta síðustu aldar og nú erum við að fóta okkur á þessu sviði og höfum verið að gera undanfarin 10–15 ár, kannski lengur, en það er eins og núverandi stjórnvöld séu algjörlega lokuð fyrir því að leggja nýjum sprotafyrirtækjum lið og þeirri nýju hugsun að nota hugvitið til þess að afla tekna og atvinnu, nýta það því að það skilar sér til baka í ríkiskassann að styðja fyrstu skrefin og á eftir að skila sér margfalt til baka í formi fjölbreyttra atvinnutækifæra og aukins hagvaxtar í landinu og gjaldeyristekna og svo mætti lengi telja.

Ungt fólk leitar mikið í skapandi greinar nú á dögum þegar það tekur ákvörðun um við hvar það vill starfa í framtíðinni. Það hefur því mikil áhrif hvernig við búum að þessum greinum. Það kom fram á fundi atvinnuveganefndar í morgun að framkvæmdastjóri sjóðsins hefði miklar áhyggjur af því hvað þessi skilaboð þýddu fyrir það unga fólk sem hefði áhuga á að koma aftur heim til Íslands og alla þá sem voru komnir af stað með margar góðar hugmyndir og þurftu stuðning til að stíga næstu skref.

Hönnun er mjög fjölbreytt í dag. Hún er ekki bara arkitektúr og grafík heldur er fjölbreytileikinn mikill og fyrirtækin mörg. Fólk gerir sér ekki alltaf grein fyrir því hvað starfið sem þarna er undir er í raun og veru víðtækt og mikil fjölbreytni á ferðinni.

Síðan er í frumvarpinu hækkun skráningargjalda hjá opinberum háskólum. Ég tek undir það sem hefur komið hér fram áður í umræðunni og lýsi furðu minni á því að það eigi að fara að skattleggja námsmenn sérstaklega og taka hluta þess skatts, ekki inn í háskólann heldur í ríkissjóð. Hvers vegna eru þessir skattar teknir út fyrir sviga, í nafni skráningargjalda, og nýtast því ekki í uppbyggingu viðkomandi háskóla heldur ríkiskassanum og fara í stóra pottinn? Það munar um allt.

Ég segi að þetta sé ákveðinn landsbyggðarskattur því að námsmenn utan af landi, sem koma annaðhvort til höfuðborgarinnar eða Akureyrar og hafa ekki búsetu fyrir á þeim stöðum þar sem háskólar eru, þurfa að leigja sér. Þeir geta ekki búið í foreldrahúsum eins og margir gera nú lengur en gert var hér áður. Það fólk sem þarf að fara úr foreldrahúsum og getur ekki sparað sér leigu með því að vera áfram í foreldrahúsum þarf að leigja með tilheyrandi kostnaði og halda sér uppi og það munar um að borga þessa hækkun skráningargjalda í opinbera háskóla, sem eiga svo ekki að renna til háskólans. Ég kalla þetta landsbyggðarskatt eins og svo margt annað sem hefur komið frá þessari ríkisstjórn sem vegur að landsbyggðinni og skattleggur hana sérstaklega.

Svo er Fæðingarorlofssjóður. Öll áform um lengingu fæðingarorlofs eru slegin af. Fæðingarorlofssjóður skiptir auðvitað alla í samfélaginu gífurlega miklu máli því að hann segir til um það í hvers konar samfélagi við erum, hve langt við erum komin í jafnréttisbaráttunni og hvernig við viljum búa að fjölskyldum okkar hér á landi. Sú hækkun sem kemur þarna fram, úr 350 þús. kr. í 370 þús. kr., er sáralítil þegar verið er að slá af lengingu fæðingarorlofs í leiðinni. Mér finnst mjög sorglegt að menn hafi tekið þennan pól í hæðina. Svo er gengið á tryggingagjaldið sem veikir tekjur Fæðingarorlofssjóðs enn frekar og hann virðist þurfa að ganga á eigið fé í framtíðinni. Þau metnaðarfullu áform um lengingu fæðingarorlofs næstu þrjú ár eru slegin af en þessi sáralitla hækkun upp í 370 þús. kr. úr 350 þús. kr., sem eru miðað við verðlagsbreytingar um 10 þús. kr., er látin standa upp úr. Mér finnst ekki vera mjög fjölskylduvæn stefna sem birtist í þessu frumvarpi.

Hér er talað um Starfsendurhæfingarsjóð. Komið er inn á frestun á framlögum í Starfsendurhæfingarsjóð. Mér finnst mjög óeðlilegt að ekki hafi verið gert eitthvert samkomulag milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisins. Þetta er ekki gott innlegg í kjarasamninga. Ég tel að ríkið geti ekki einhliða dregið úr þessum útgreiðslum. Mér finnst það mjög óeðlilegt. Starfsendurhæfingarsjóður hefur sýnt fram á, þann tíma sem hann hefur verið starfræktur, að hann hefur skilað hlutverki sínu vel og hjálpað fjölda fólks að komast aftur út á vinnumarkaðinn. Ef rifta á þessu samkomulagi gera menn það ekki einhliða. Ríkið verður að sýna þá virðingu gagnvart þeim aðilum sem þarna eiga í hlut að ræða þetta og skoða, ef eitthvert samkomulag á að vera á annað borð.

Það hefur verið komið hér inn á komugjöld á sjúkrahús. Mér finnst slík gjöld vera það mikil grundvallarbreyting á því sem við þekkjum að ekki eigi að fara út í þá gjaldtöku, alls ekki. Ég get tekið undir að eðlilegt sé að skoða þetta í heildarsamhengi þegar kostnaðarhlutdeild sjúklings er skoðuð með það að markmiði að reyna að lækka hana sem mest og hafa þak varðandi lyf og heilbrigðiskostnað, en við breytum ekki því grundvallarsjónarmiði sem hefur verið hérna ríkjandi að veikt fólk þurfi ekki að borga sig inn á spítala. Við höfum verið sammála um það sem þjóð. Mér finnst grafalvarlegt að við séum að sveigja af þeirri braut (Forseti hringir.) samfélagsins sem hefur verið sátt um hingað til.