143. löggjafarþing — 35. fundur,  12. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[21:21]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið.

Á síðasta kjörtímabili stóð ríkisstjórn frammi fyrir því að halli ríkissjóðs var rúm 14% af vergri landsframleiðslu. Og hvað gerðu stjórnvöld á síðasta kjörtímabili? Þau lögðu áherslu á að styrkja nýsköpun og sprotafyrirtæki, rannsóknir og þróunarstarf og það var eitt af því sem gerði það að verkum að á þessu ári, þegar núverandi ríkisstjórn fékk ríkissjóð í hendurnar, var halli ríkissjóðs orðinn um 1% af vergri landsframleiðslu. Hvað segir það okkur um réttar áherslur, að fara blandaða leið, og þá leið sem núverandi ríkisstjórn velur sér, niðurskurð, að skera niður þar sem vaxtarsprotar og möguleikar eru?

Þó að menn hafi ekki gengið svo langt að ganga algjörlega frá þessari grein þá væri það auðvitað svo arfavitlaust að það er ekki einu sinni hægt að ímynda sér að þessi ríkisstjórn mundi ganga svo langt, þótt henni sé trúandi til margs. Það segir sig sjálft að ef við stöndum ekki með vaxtargreinunum erum við að hrekja fjöldann allan af fyrirtækjum úr landi, veðja á gamaldags atvinnuvegi eins og stóriðju, sem menn hafa séð að er ekki framtíðarmúsík fyrir þetta land, það er hvorki vilji ungs fólks að mennta sig til þeirra greina né vilja fjárfestar yfir höfuð fjárfesta í þeirri grein í dag. Menn verða því að fara að hugsa upp á nýtt, nota hugvit sitt í ríkisstjórninni (Forseti hringir.)og beina því í réttar áttir.