ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.
Hæstv. forseti. Ég held að fólk vilji nú frekar vera heima en að liggja á sjúkrahúsi. Sem betur fer eru læknavísindin komin á þann stað að telja það betra að fólk sé meira heima en að liggja á sjúkrahúsi vegna þess að það hefur neikvæð áhrif að liggja mikið fyrir í lokuðu rými.
Ástæðan fyrir því að ég er á móti þessum sjúklingagjöldum er sú að ég tel að þá séum við að byrja að brjóta okkur leið inn á enn nýja staði í gjaldtöku, inn á enn ný svið. Við erum farin að ganga allt of langt í gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu, allt of langt, og lausnin á því er ekki sú að finna nýjar leiðir til að sækja ný gjöld. Lausnin á því er sú að skoða hvernig við getum lækkað hlutdeild sjúklinga þar sem gjaldtaka á sér stað. Þess vegna er ég ekki til viðræðu (Forseti hringir.) um að við brjótum okkur nýjar lendur í gjaldtöku í heilbrigðisþjónustu.