143. löggjafarþing — 35. fundur,  12. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[22:35]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Í velferðarþjóðfélagi er jafnrétti til náms óháð efnahag grundvallarmál, rétt eins og aðgengi að heilbrigðisþjónustu og slíku. Það er mikilvægt að þjónustugjöldin sem innheimt eru, eins og þessi gjöld eru sannarlega þó að þau virðist í einhverjum skilningi vera hálfgerð skólagjöld, verði ekki svo há að þau fari að ógna markmiðum um aðgengi óháð efnahag.

Því vil ég spyrja hv. þingmann hvort hann telji ekki að með þessari hækkun séum við komin umfram það sem getur kallast hófleg gjaldtaka fyrir nám í opinberum háskóla.