143. löggjafarþing — 35. fundur,  12. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[22:42]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Nú búum við svo vel að hér eru fulltrúar úr nefndinni sem um þetta fjallaði, m.a. hv. þm. Frosti Sigurjónsson og hv. þm. Pétur H. Blöndal, sem var talsmaður. Það væri ósköp notalegt ef þeir á síðari stigum, annaðhvort með stuttri ræðu eða andsvari, hjálpuðu okkur að fá skýringar einmitt á komugjaldinu og legugjaldinu, hvort komugjaldið eigi að skila sömu upphæð. Mér finnst það skipta máli því að það hefur áhrif á hvað við erum að tala um hátt komugjald. Það er líka sagt að það verði lægri gjöld á aldraða, öryrkja og börn. Af hverju ekki ókeypis fyrir börn eins og er á bráðaspítala eða þegar menn koma inn í bráðamóttöku í dag eða á heilsugæslu?

Eins með nefskattinn, sem er nú ekki hér í þessum breytingum en er í frumvarpinu sjálfu, að leggja nefskatt á vegna Ríkisútvarpsins, hækka hann núna til tveggja ára. Af hverju á að gera þetta í gegnum nefskatt til þess að nota inn í skattkerfið? Af hverju eru menn með þennan leik í staðinn fyrir bara að viðurkenna að við þurfum að hækka tekjuskatt, (Forseti hringir.) sem leggst á með miklu réttlátari hætti? Mig langar að heyra skoðanir hv. þingmanns á þessum hlutum.