ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.
Hæstv. forseti. Ég held að það sé rétt sem hv. þm. Katrín Jakobsdóttir bendir á að það voru allt aðrar breytur sem réðu hér á árunum 2008, 2009 og 2010. Það er mjög forvitnilegt í þessari skýrslu sem ég er sífellt að vitna í að körlum fækkaði töluvert mikið 2009, en 2009 var ekki búið að lækka þakið þannig að þá réðu einhverjir aðrir þættir. Ég held að það sé hárrétt að þar hafi vinnan skipt miklu máli og síðan er það þannig að karlarnir, af því að þeir hafa þrjú ár til þess að taka fæðingarorlofið, koma gjarnan inn síðar. Þegar við erum að skoða þessar tölur, hvaða áhrif þessar breytingar hafa haft, er eiginlega of snemmt að lesa út úr þeim fyrr en tíminn er liðinn sem þeir mega taka fæðingarorlofið, því að það hefur alls staðar sýnt sig að karlarnir koma seinna inn.
Það sem er athyglisvert í samanburði við Norðurlöndin er að við erum með langsamlega stysta fæðingarorlofið. Aftur á móti var mjög forvitnilegt að Norðmenn voru að fást við að skipta orlofinu, nú kann ég ekki alveg nýjustu söguna en þeir voru að sækja okkar hugmynd um að skipta orlofinu á milli föðurins og móðurinnar þannig að ef faðirinn tók ekki orlofið og engar sérstakar aðstæður fyrir því féll það niður. Og það var einfaldlega vegna þess að menn voru að hugsa um rétt barnsins, það er réttur barnsins að fá að vera með bæði föður og móður jafnvel þó að þau búi ekki saman. Þessa hugmyndafræði ætluðu Norðmenn sér að taka upp. Ég veit ekki hvort þeir kláruðu það en ég sat m.a. á fundum með ráðherrum sem voru að vinna að þessu á þeim tíma.
Það er svo annað lag á þessu í Svíþjóð t.d. þar sem ég hef fengið að fylgjast með í gegnum dóttur mína og annað. Þar er þetta miklu lengri tími, orlofið tekið á lengri tíma. Þú getur skipt því, þú getur líka geymt hluta af því þegar barnið fer í leikskóla eða þegar það byrjar í skóla mörgum árum seinna. Þar eru menn með allt annað umhverfi hvað þetta varðar en við, þannig að við eigum mjög langt í land. Þess vegna er svolítið (Forseti hringir.) sorglegt að við skulum ekki taka þau skref, sem stefnumótun, að (Forseti hringir.) lengja orlofið, jafnvel þótt við náum ekki að byrja á því á morgun.