ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.
Herra forseti. Ég hef síst þingmanna í þessum þingsal kvartað yfir kvöldfundum þó að oft hafi heyrst á síðasta kjörtímabili að það þætti ekki í anda fjölskylduvæns vinnustaðar. Ég ætla ekki að ræða það hér en vil samt segja að við erum að ræða tekjuöflunarfrumvarp hæstv. ríkisstjórnar. Í þessu frumvarpi eru fjórir lagabálkar sem heyra undir velferðarnefnd og tveir til viðbótar sem komu þar inn í breytingum hjá nefndinni. Velferðarnefnd hefur ekki fengið þetta mál til umsagnar. Það eru veigamiklir þættir sem ég tel nauðsynlegt að fá að reifa úr ræðustól en það er líka þannig að í tæplega tvo og hálfan mánuð hefur fjárlagafrumvarpið verið til umræðu í fjárlaganefnd. Á morgun hefst 2. umr. og við sem erum í þessari umræðu höfum ekki tíma til að kynna okkur efni nefndarálits meiri hlutans ef hér verður þingfundur fram eftir kvöldi. (Forseti hringir.) Ég vil þá heyra hvernig hæstv. forseti hyggst koma til móts við okkur þingmenn sem ekki getum búið okkur undir þá umræðu.