143. löggjafarþing — 35. fundur,  12. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[23:44]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Það sýnir hvað það er langt liðið á kvöldið að virðulegur forseti er búinn að flytja mig í mitt gamla kjördæmi, Reykjavíkurkjördæmi norður. Mér líkar það satt að segja stórum betur því að þar hef ég löngum verið búsettur.

Ég er í hópi þeirra sem telja að alþingismenn hafi ekki lifað fyrr en þeir hafa átt hér umræður eina nótt og séð bjarma af nýjum degi inn um gluggana eftir snörp skoðanaskipti í salnum. Ég tel dvölina þess vegna ekki eftir mér, og við lögðumst auðvitað ekki gegn kvöldfundi, en ég vek (Gripið fram í.) athygli virðulegs forseta á því að á morgun er 2. umr. fjárlaga. Það er mikilvægasta þingumræðan sem við eigum. Þar gerum við ráð fyrir góðum tíma fyrir menn, þar eru mikil gögn undir og mér finnst ekki alveg boðlegt að ætla að keyra langan næturfund í aðdraganda þeirrar umræðu. Mér finnst gilda nokkuð annað um aðfaranótt (Forseti hringir.) fjárlagaumræðu.