ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.
Herra forseti. Ég er ákaflega ánægð með svar hv. þingmanns. Ég held reyndar að umræða um fjöldatakmarkanir sé mjög viðkvæm. Það þarf að taka hana á löngum tíma. Þá ákvörðun vona ég að hæstv. ríkisstjórn fari nú ekki að taka með sama hætti og hún hefur tekið margar aðrar í þessari fjárlagagerð því að það væri óðs manns æði.
Ég held nefnilega að vandinn sé sá að háskólarnir hafa gengið í gegnum mikið niðurskurðartímabil, hafa tekið á móti nemendum. Ég tel að nemendur að hætti ekki við námið af því að skráningargjöldin séu ekki nógu há til að vera hvati til þess að halda áfram, heldur af því að þjónustan er einfaldlega orðin of léleg, og þar með kennslan af því að það eru stórir nemendahópar í kúrsum við háskólana. Þjónusta við nemendur er því mun lakari en til dæmis í einkareknu skólunum (Forseti hringir.) þar sem við greiðum niður (Forseti hringir.) skólagjöld með skattfé.