143. löggjafarþing — 35. fundur,  13. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[00:20]
Horfa

Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Árni Páll Árnason) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil eins og aðrir þingmenn sem hafa veitt andsvar við ræðu hv. þingmanns þakka henni fyrir efnisríka ræðu og græt það hversu margir óskuðu eftir að fá að veita andsvar þannig að við fáum einungis þessa mínútu. Ég hafði hug á að eiga ríkari orðastað við hv. þingmann í ljósi efnis ræðu hennar og verð auðvitað að beina því til hennar að þetta er skýr áskorun um að hún fari í aðra ræðu og gefi okkur kost á frekari skoðanaskiptum. (PHB: Tíminn er búinn.)

Mig langaði sérstaklega að vekja máls á því sem hér hefur verið rætt, þessu undarlega orðalagi í áliti meiri hlutans að hann telji að hækkun skólagjalda kunni að hvetja námsmenn til að nýta betur það nám sem opinberir háskólar bjóða upp á. Fyrir nokkrum klukkustundum var birt á vefmiðlinum visir.is aðsend grein frá formanni stúdentaráðs Háskóla Ísland þar sem hún gerir sérstaklega þessa grein að umtalsefni og hversu dapurleg skilaboð felist í henni, sérstaklega í ljósi þess að ef háskólinn fær ekki notið skráningargjaldanna verða nemendur settir í þá stöðu að þeir (Forseti hringir.) verða sífellt óánægðari og óánægðari með þá þjónustu sem þeir telja sig vera að fá (Forseti hringir.) fyrir þau skráningargjöld sem þeir greiða.