143. löggjafarþing — 35. fundur,  13. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[00:49]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þingmaður kemur inn á ýmsa þætti, skattbreytingar. Það er alveg rétt að skattprósenta á millitekjuþrepi er lækkuð. Ég minni á að við vorum sameinuð í því í stjórnarandstöðunni að við hefðum kosið að það hefði verið lægsti hópurinn sem hefði notið góðs af breytingum eða samræmingu í kerfinu. Ég hygg að flestir sem fá kannski 1.000 kr. þarna og búa við sæmilega heilsu hefðu fremur kosið að greiða þennan skatt áfram, sem okkur er sagt að eigi að gefa 5 milljarða, og sleppa þá við að þurfa að greiða þetta gjald ef þeir veikjast og eru lagðir inn á spítala. Ég held að það sé hið almenna sjónarmið á Íslandi.

Hvert leiðir þetta? Ég held að þetta geti leitt okkur út í miklar ógöngur ef við förum út á þá braut að markaðsvæða velferðarkerfið, það stefnir í þá átt. Fjárfestar á heilbrigðissviði segja að núna séu að opnast spennandi tækifæri á heilbrigðismarkaði. Það er ekki sérstaklega skemmtilegt tungutak, en svona er talað; það eru að opnast ný tækifæri. Og fjárfestar á nýju sjúkrahúsi í Mosfellsbæ segja að þetta sé nú enn þá þungt fyrir fæti en andinn sé miklu betri núna eftir ríkisstjórnarskiptin, þeir finni fyrir því.

Varðandi ohf. og Ríkisútvarpið. Það er staðreynd að réttarstaða opinberra starfsmanna er tryggari en gerist á almennum markaði, en þó leyfi ég mér að staðhæfa að þegar sagt er að uppsagnir með þessum hætti tíðkist á almennum vinnumarkaði þá held ég að það sé ekki almennt. Ég held að menn komi ekki svona fram almennt í fyrirtækjum á vinnumarkaði.