143. löggjafarþing — 35. fundur,  13. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[00:56]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að fólkinu sem var sagt að hypja sig heim fyrir jólin, var sagt upp sumu hverju eftir áratugastarf, finnist ekkert hallærislegt að vekja máls á þessu.

Ég tek hins vegar undir að það er ekki hægt að setja alla sjálfstæðismenn undir sama hatt. Ég verð að segja að mér finnst það vera gott hjá hv. þingmanni að segja það sem hún sagði hér í ræðustól. Hún er í rauninni með orðum sínum að gagnrýna þessi vinnubrögð í Ríkisútvarpinu. Mér finnst það gott. Það er það sem ég kalla eftir og ég tel að við þurfum að gera. Þannig rísum við undir ábyrgð og þannig verðum við ekki samsek í þeim skilningi.

Það er því miður nokkuð sem heyrir ekki sögunni til — ég hélt að það heyrði sögunni til — að kalla menn á teppið. Það var fyrst og fremst úr röðum Sjálfstæðisflokksins sem þetta var gert, ég get borið vitni um það sjálfur. Ég átti mörg slík símtöl, ég þekki þetta mjög vel. Ég man það líka vel þegar núverandi stjórnarmaður hjá útvarpinu skýrði frá því opinberlega að hún sem þingfréttaritari hefði verið kölluð heim til eins ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Er hallærislegt að tala um það? Ég held að það sé alveg bráðnauðsynlegt að tala um þetta. Það má líka tala um það að fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur verið ráðinn inn til sjónvarpsins í rándýran þátt á sama tíma og öðrum er sagt upp. Er eitthvað hallærislegt að tala um það? Má ekki tala um það? Auðvitað á að tala um þetta. Má kannski ekki tala um það líka, með fullri virðingu fyrir Framsóknarflokknum, að fulltrúi hans í hagræðingarnefnd ríkisstjórnarinnar sendi heldur betur pillurnar til Ríkisútvarpsins í aðdraganda þessa niðurskurðar? Er undarlegt að fólk setji samasemmerki á milli þessa, (Forseti hringir.) hótana af þessu tagi og síðan niðurskurðar í kjölfarið? (Forseti hringir.) Auðvitað hljótum við að gera það og (Forseti hringir.) það er ekkert hallærislegt við það, ekki neitt.