ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.
Herra forseti. Ég ætla rétt eins og hv. þm. Katrín Júlíusdóttir að nýta tækifærið, af því að hv. þm. Bjarkey Gunnarsdóttir situr í fjárlaganefnd, og spyrja hana út í breytingar á lögum varðandi greiðslur í Starfsendurhæfingarsjóð.
Nú er það svo að í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að bráðabirgðaákvæðið um lægra hlutfall tryggingagjalds inn í sjóðinn haldi sér áfram, en síðan þegar rýnt er, eftir stóru barnabótasprengjuna sem við fengum á netmiðlunum á sunnudag og hefur síðan verið í gerjun og niðurstaðan var sú að meðal annars starfsendurhæfingin gæti komið í veg fyrir lækkun barnabóta, berast fréttir af því sem nú fæst staðfest í breytingartillögum frá meiri hluta fjárlaganefndar, að þetta gjald eigi að lækka enn frekar. Svo virðist sem hér sé komið ákveðið misræmi. Ég veit ekki hvenær þetta mál var afgreitt út, en ég er búin að vera að rýna breytingartillögurnar og ég spyr hv. þingmann, af því að ég hef ekki haft mikið tækifæri til þess að kynna mér breytingartillögurnar frá fjárlaganefnd sem komu fram í dag, hvort ekki sé verið að falla frá þessari hlutdeild alfarið af hálfu ríkisins (Forseti hringir.) í fjárlagafrumvarpinu.