143. löggjafarþing — 35. fundur,  13. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[01:33]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er akkúrat það sem er verið að gera og ég gagnrýndi það áðan og hef gert áður, ég gerði það í fjárlaganefnd. Ríkissjóður fjármagnar Starfsendurhæfingarsjóð að 1/3 og verið er að taka það alfarið út án samráðs við aðra sem þetta fjármagna. Það breytir því ekki og mér finnst rökstuðningur meiri hlutans í þessari grein — það er talað um að sjóðurinn hafi ekki þróast eins og vænst var eða að horfið hafi verið frá úreltu örorkumati og starfsgetumati o.s.frv. Hvers vegna er það ekki endurskoðað? Hvers vegna er ákveðið að gera þetta einhliða? Þegar við gerum samkomulag geri ég ráð fyrir því að við eigum að hafa af því afskipti, ekki bara á aðra hliðina heldur eigum við að ræða saman og ákveða: Allt í lagi, við ætlum ekki að hafa þetta svona.

Hérna er það gert einhliða og mér finnst það ekki vænlegt til árangurs þegar við þurfum að leita til atvinnulífsins eða lífeyrissjóðanna með einhver mál í framhaldinu ef ríkið leyfir sér að koma svona fram, samanber ákvörðun ríkisstjórnarinnar núna um að ræða ekki við sveitarfélögin varðandi úttekt séreignarsparnaðar. Þetta er álíka, að taka einhliða ákvarðanir þegar átt er í samningaviðræðum við aðra.

Ég hefði viljað sjá, og það er til held ég, einhverja úttekt á Starfsendurhæfingarsjóðnum. Hér er ekki vitnað til þess mats og það er skynsamlegra að skoða hvað hefur ekki gengið upp fremur en að horfa í að hann sé skorinn niður og í raun lagður af. Það á að taka öll þessi vinnumarkaðsúrræði og endurskoða þau en ekki hætta einhliða við samninga.