143. löggjafarþing — 35. fundur,  13. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[01:35]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Í sumar fór hér í gegn frumvarp frá ríkisstjórninni þar sem ákveðið var að lögfesta ekki frítekjumark vegna tekjutryggingar örorkulífeyrisþega. Það er bráðabirgðaákvæði, þetta hærra frítekjumark þótt það hafi verið fest í lög fyrir ellilífeyrisþega, einmitt í ljósi þess að verið væri að skoða starfsendurhæfingarmálin.

Hér er aftur á móti komið með þveröfuga stefnu þar sem án samráðs við aðilana er dregið úr styrk Starfsendurhæfingarsjóðsins, þess eina sem er að störfum að sinni. Þetta er mjög einkennilegt og flausturslegt því að það er ekki einu sinni spegill á milli gjalda- og tekjuhliðar í breytingartillögum frá meiri hlutanum.