143. löggjafarþing — 35. fundur,  13. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[01:37]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bjarkeyju Gunnarsdóttur fyrir ágæta ræðu, hún var nokkuð málefnaleg og rökföst. Hún ræddi um fæðingarorlofið og gat þess að hún mundi frekar vilja lengja það en að hækka mörkin. (Gripið fram í: Bæði.) Hún vildi gera bæði, já. En þá kemur vandamálið með aurinn og það veit hv. þingmaður eins og skein út úr ræðu hennar. Við stöndum í þeim vanda að við borgum — ég hef nefnt það hérna áður og kannski þarf að nefna það í hverju einasta andsvari — við borgum allt of háa vexti og til þess að minnka þá þurfum við að lækka skuldir ríkissjóðs, til þess að minnka þær þurfum við að koma með afgang á ríkissjóð, þetta er sama tuggan. Þá þarf að gera mjög marga leiðinlega og erfiða hluti. Einn af þeim er að reyna að spara útgjöld Fæðingarorlofssjóðs og þá er spurningin: Getur maður hækkað hámarkið eða á maður að lengja orlofið?

Af því að ég er nú frekar mikill jafnréttissinni og af því að ég trúi því að fæðingarorlofið, þegar það var tekið upp, hafi jafnað stöðu karla og kvenna, þ.e. gert karlmenn jafn dýra og konur á vinnumarkaði, og vegna þess að ég tel að rökfræðilega hugsað hafi hámarkið einhver áhrif á það hvort karlmenn taki orlofið — karlmenn eru yfirleitt með hærri laun en konur og töluvert hærri en þessi lágmarksmismunun sem kemur fram og lægri mörk þýði þá að karlmenn telji sig ekki hafa efni á því að fara í fæðingarorlof, sem er mjög slæmt — mundi ég frekar vilja velja hækkun hámarksins. En þá koma náttúrlega upp vandamálin með barnið, hvað eigi að gera við barnið o.s.frv., þannig að þetta er afskaplega erfið ákvörðun.

Mig langar til spyrja hv. þingmann: Hefur hún skoðað foreldraorlofið, sem er lögbundið leyfi foreldra til að taka sér ólaunað leyfi?