143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

viðbrögð AGS við skuldaleiðréttingum ríkisstjórnarinnar.

[10:38]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég held áfram að svara spurningum hv. þingmanns. Ég var ekki alveg búinn að klára að svara spurningunni um hvað menn gætu gert til þess að vinna gegn verðbólgunni.

Það mikilvægasta af því sem ríkisstjórnin getur gert og Alþingi er að skila hallalausum fjárlögum. Svo skiptir auðvitað verulegu máli að kjarasamningar leiði ekki af sér aukna verðbólgu. Það er von til þess að hægt sé að gera slíka samninga, annaðhvort til langs tíma núna eða þá til skemmri tíma og síðan framlengja þá að ári. En ástæðan fyrir því að menn hafa lagt svo mikið á sig við það að ná hallalausum fjárlögum og leitað fanga mjög víða til þess að spara, þrátt fyrir gríðarlega aukin framlög til heilbrigðismála til dæmis og velferðarmála, er sú að það er grundvallaratriði að menn skili hallalausum fjárlögum ef þeir ætla að ná tökum á efnahagsmálunum og þar með talið verðbólgunni.

Nú er loksins von til þess að menn nái tökum á verðbólgunni á Íslandi og ástæða (Forseti hringir.) til þess að fagna því, en ein af forsendum þess er að menn skili hallalausum fjárlögum.