143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

ný stjórn RÚV og uppsagnir.

[10:40]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Ríkisútvarpið, RÚV ohf., kom til umræðu í þingsal í gær. Þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins þótti ég hafa stór orð þegar ég ræddi það sem ég hef kallað ofsóknir Sjálfstæðisflokksins á hendur Ríkisútvarpinu fyrr og nú. Ég vakti máls á því að á sama tíma og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins er ráðinn til að stýra rándýrum sjónvarpsþætti er mörgu mætasta starfsfólki Ríkisútvarpsins, sumu til margra áratuga, sagt upp störfum, og með skömm, sagt að snáfa heim.

Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sagði ómaklegt að spyrða vinnubrögð stjórnenda Ríkisútvarpsins við Sjálfstæðisflokkinn og átaldi þessi vinnubrögð. Það var vel.

En nú beini ég þeirri spurningu til hæstv. menntamálaráðherra hvort mig misminni að í vor höfum við kosið hér á Alþingi pólitíska stjórn, pólitískt skipaða stjórn yfir Ríkisútvarpið. Heyrði ég ekki einhvers staðar hæstv. menntamálaráðherra taka undir með og verja sína menn í stjórn Ríkisútvarpsins?