vinna breytingartillagna við fjárlög.
Herra forseti. Það er venjan að ríkisstjórn sendi fjárlaganefnd fyrir 2. umr. fjárlaga tillögur til breytinga þar sem þess er farið á leit við nefndina að tekið verði tillit til þeirra hugmynda sem fram koma í erindinu um breytingar á frumvarpi til fjárlaga. Sami háttur var hafður á að þessu sinni og breytingartillögurnar voru undirbúnar í fjármálaráðuneytinu eftir víðtækt samráð við öll ráðuneyti. Þegar þær höfðu verið kláraðar sem tillögur voru þær kynntar í ríkisfjármálanefnd, þ.e. ráðherranefnd um ríkisfjármál. Þær voru sömuleiðis kynntar í ríkisstjórn sl. föstudag, fyrir viku síðan, og eftir að þeim ríkisstjórnarfundi lauk voru tillögurnar kynntar af starfsmanni fjármálaráðuneytisins í fjárlaganefnd fyrir nefndinni allri.
Hins vegar verður að hafa það í huga að um er að ræða beiðni, ósk til nefndarinnar um að taka tillit til þeirra hugmynda sem þarna koma fram. Þetta getur aldrei orðið annað en beiðni eða ósk vegna þess að málið er á fullu forræði þingsins á þessu stigi. Vaninn er og það gerðist líka að þessu sinni að í framhaldinu var unnið með þessar hugmyndir næstu daga og málið þróaðist þannig í samskiptum fjármálaráðuneytisins og meiri hluta nefndarinnar að breytingar urðu á þessum hugmyndum. Ég hef talað mjög opinskátt um það, gerði það í fjölmiðlum um síðustu helgi og hef gert það alla þessa viku. Ég kannast við það að í upphafi voru hugmyndir um að ná markmiðinu um hallalaus fjárlög og forgang í þágu heilbrigðisþjónustunnar með því að skerða meðal annars barnabætur en niðurstaðan varð á endanum önnur. (Forseti hringir.) Ég tel að niðurstaðan hafi verið farsæl og að það sé fagnaðarefni (Forseti hringir.) að okkur hafi tekist að safna svona (Forseti hringir.) miklu á bak við framlög (Forseti hringir.) til heilbrigðisþjónustunnar.