143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[11:17]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Í nótt kom hv. þm. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir með þá réttmætu athugasemd að ýmis atriði þessa frumvarps gætu heyrt undir aðrar nefndir en hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Ég kom þeirri athugasemd á framfæri við nefndina á fundi í morgun og þar var samþykkt að vísa þessu til þeirrar nefndar sem viðkomandi atriði heyra undir. Þessi athugasemd var þannig strax tekin til greina. Því miður kemur hún dálítið seint fram en það verður unnið þannig að nefndirnar munu fjalla um þetta núna á milli 2. og 3. umr. og hv. efnahags- og viðskiptanefnd fær svo álit þeirra á þessum málum.

En þetta er alveg réttmæt athugasemd sem nefndin hefði átt að skoða miklu fyrr.