143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[11:29]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér telst mér til að verið sé að greiða atkvæði um það — eða breytingartillagan snýst í raun um það að fallið verði frá þeirri skerðingu sem fyrirhuguð er á endurgreiðslu á rannsókna- og þróunarkostnaði hjá nýsköpunarfyrirtækjum. Þessi breytingartillaga snýst um það að við fylgjum ekki þeim fyrirætlunum að skerða þessar endurgreiðslur heldur höldum þeim í horfinu og ég minni á það sem hér kom fram margoft í gær, að nýsköpun og rannsóknir eru auðvitað einn öflugasti vaxtarsproti þessa samfélags og fjárfesting í þessum greinum fer saman við hagsæld samfélaga. Þetta er því gríðarlega mikilvægt mál til að efla hér nýsköpun í landinu.