143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[11:36]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Ég styð þessi ákvæði og þessa tillögu. Ég tel að okkur öllum hér og öllum Íslendingum þyki vænt um RÚV og ég tel að það sé miklum ofsögum sagt að hér sé verið að ráðast að stofnuninni með þeim hætti sem hv. þm. Ögmundur Jónasson o.fl. hafa sagt í ræðustól. Það eru rúmir 3 milljarðar kr. sem renna til stofnunarinnar á fjárlögum þessa árs fari frumvarpið hér í gegn með þeim hætti sem við leggjum til. Ég held að flestöllum þyki það talsverðir fjármunir.