ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.
Hæstv. forseti. Ég hef ekki þær áhyggjur að fólk hlúi ekki áfram að börnum sínum þótt við förum með málið með þessum hætti í gegnum þingið og minni á það að í upphafi síðasta kjörtímabils var ríkisstjórnin í því að skera niður framlög til Fæðingarorlofssjóðs, úr 13 milljörðum í 7. Nú erum við einfaldlega bara ekki sammála um hvort þessi loforð ríkisstjórnarinnar sem voru loforð inn í framtíðina, loforð um það að taka ekki sjálf að sér kostnaðinn heldur að lofa því eitthvert inn í framtíðina eins og flestöll önnur loforð fyrrverandi ríkisstjórnar snerust um. Ófjármagnaður (Gripið fram í: Hvað er ekki …?) loforðapakki. [Háreysti í þingsal.] Þannig var þetta einfaldlega. Menn þurfa bara að kannast við sín verk. (Forseti hringir.)
(Forseti (EKG): Forseti biður um hljóð í þingsalnum.)