143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[11:44]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Ég styð þessa tillögu og minni á að það er ekki síst vegna mikillar baráttu þeirra tveggja kvenráðherra sjálfstæðismanna sem sitja hér til hliðar við mig á sínum tíma að þessi fæðingarorlofsmál sem við þekkjum vel, um það að bæði karlar og konur, feður og mæður, taki fæðingarorlof, kom til. Ég vil einfaldlega óska þessum tveimur ágætu ráðherrum okkar til hamingju með að vera komnir hingað. Nú erum við á þessum stað að greiða atkvæði um þessa tillögu og við erum enn að viðhalda þessu góða kerfi. Ég óska okkur til hamingju með það og gott að menn hér geti sameinast um þessa tillögu.

Í ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var lagður grunnurinn að þessu og að sjálfsögðu erum við með stefnu í þessum málaflokki. [Kliður í þingsal.]